Á fyrri dögum áttu nátttröll tvö heima í Hegranesi; var það karl og kerling; ekki fóru miklar sögur af þeim, fyrr en þessi saga gjörðist. Það bar til eitt sinn, að kýr þeirra varð yxna; en hvort sem það hefur verið af því, að þau áttu eigi öðrum á að skipa, eða af hinu, að þau trúðu sjálfum sér best, fóru þau og leiddu sjálf kúna, svo að hún skyldi ekki missa tíma. Karlinn teymdi hana, en kerling rak á eftir, sem venja er til. Héldu þau svo með kúna út Hegranes og út á Skagafjörð góðan kipp.Þegar þau áttu enn eftir býsna spotta til þess að hálfna fjörðinn, sáu þau, að dagur ljómaði austan megin fjarðarins í fjallaskörðum og yfir fjallabrúnum. En með því það er bráður bani nátttrölla, ef þau dagar uppi, varð þeim dagsbirtan að fjörlesti, svo þau urðu sitt að hvorum steindranga, og eru það nú drangar þeir, sem standa annar fyrir utan Drangey, og er það karlinn, en hinn fyrir innan eyna, og er það kerlingin; draga drangar þessir af því nafn og heita enn í dag Karl og Kerling; en úr kúnni varð eyjan sjálf, og þótt þess sé ekki getið, að kýrin hafi verið búin að taka við fangi í för karls og kerlingar, hefur hún þó einatt orðið Skagfirðingum arðsöm vorbæra, sem fyrr er sagt.
Það er eldgamall siður, sem enn helst við, að allir þeir, sem til Drangeyjar fara í fyrsta sinni á vorin, heilsi henni og Kerlingu og Karli. Byrjar formaðurinn það fyrstur á hverju skipi og segir:
"Heil og sæl (eða happasæl), Drangey mín, og allir þínir fylgjarar; heil og sæl (eða happasæl), Kerling mín, og allir þínir fylgjarar; heill og sæll (eða happasæll), Karl minn, og allir þínir fylgjarar."
Síðan hefur hver háseti á skipinu og eins þeir, sem yfirskips eru, allan hinn sama formála. Þó það megi vel vera, að þetta sé nú gjört meir af gamni en alvöru, þykir þó mega ganga að því vísu, að slíkt séu leifar af hinni fornu trú á landvætti Drangeyjar og siður þessi hafi haldist frá aldaöðli eða þá að minnsta kosti frá því, er þar urðu slysfarirnar miklu, sem fyrr er getið, áður en Guðmundur biskup vígði eyna.
Netútgáfan - janúar 1998