Sveinn spaki, biskup í Skálholti 1466-1476, var kallaður forspár og framsýnn. Sumir ætluðu, að hann kynni hrafnamál, en aðrir, að það væri ekki hrafn, heldur einhver andi í hrafnslíki, illur eða góður, sem hann hefði mök við.Þegar hann var kirkjuprestur í Skálholti, mörgum árum áður en hann varð biskup, var hann sendur upp að Torfastöðum að messa þar, og reið með honum piltur, sem Erlendur hét Erlendsson, frá Kolbeinsstöðum í Borgarfirði.
Svo bar til, þegar þeir komu í hólana fyrir sunnan Hrosshaga, að harðviðrisbyl gjörði á þá með fjúki, og lögðust þeir þar fyrir. Pilturinn fór þá að örvænta og sagði, að hann mundi aldrei þaðan lífs komast.
Prestur sagði, að hann skyldi bera sig karlmannlega, "því hér eftir kemur gott, og önnur verður þá okkar ævi, þá ég er biskup í Skálholti, en þú eignast dóttur Þorvarðs ríka á Möðruvöllum og hústrúnnar þar."
Erlendur svaraði: "Það veit ég verða má, að þér verðið biskup í Skálholti, en það má aldrei verða, að ég fái svo ríka og vel borna stúlku, jafn-fátækur sem ég er."
"Efa þú aldrei," segir prestur, "guðs gáfur, hans mildi og miskunn, því svo mun verða sem ég segi og það til merkis, að þá þú ríður til konukaupa, mun slík helliskúr koma, að menn munu varla þykjast muna slíka."
Á móti morgni létti upp hríðinni, og fóru þeir leiðar sinnar til Torfastaða. Svo fór allt og fram kom, að Erlendur efldist og mannaðist og eignaðist Guðríði, dóttur Þorvarðs, en Sveinn varð biskup. En þegar Erlendur reið til kaupa, kom svo mikil hvolfuskúr, meðan þeir riðu heim, að allt varð hríðvott, en áður var glatt sólskin, er þeir komu undir túnið.
Meðan Sveinn var prestur, skírði hann barn einu sinni, og sagði hann, að því mætti ætla brækur, en ekki sokka, því það mundi verða flysjungur. Barnið óx upp, varð röskur maður og framdi tvö manndráp í tíð Stefáns biskups.
Hann sagði fyrir um vinda og veðráttufar, um lífsstundir manna og hvernig til mundi ganga í Skálholti eftir sinn dag, að hinn fyrsti biskup eftir sig mundi ekki ríkja lengi; annar þar eftir mundi hýsa vel staðinn og mest grjót til hans flytja; þriðji þar eftir mundi draga mestan grenivið að staðnum og kirkjunni, "og má með réttu," hafði hann sagt, "sá hinn fyrri kallast grjót-biskup, en hinn greni-biskup. Þar eftir með hinum fjórða munu siðaskipti koma í land á öllu: messusöng og tíðagjörðum, hringingum og helgihöldum, og mun það alla tíma aukast meir með þeim fimmta og sjötta; þá vil ég heldur vita son minn búa í Höfða hjá Skálholti eða væri fjósamaður í Skálholti en kirkjuprestur þar, því Skálholt hefur aukist og eflst með herradæmi, en mun eyðast með eymd og vesalingsskap, enda er þá þetta land komið undir útlendar þjóðir."
Netútgáfan - apríl 1997