Það var einhverju sinni hertogi, og átti hann unga frú. Þau unnust vel, en áttu þó lengi engin börn, og undu þau því illa. Eitt sinn gekk frúin að skemmta sér með þernum sínum í fagran lund.Sigraði hana þá svo mikill svefn, að hún gat eigi hrært sig úr stað þaðan, og er hún var sofnuð, dreymdi hana, að þrjár konur í bláum klæðum kæmu til sín og segðu: "Við vitum, að það eykur þér ógleði, að þú átt engin börn; nú erum við komnar hér að ráðleggja þér, hvað þú skalt gjöra, er þú vaknar; gakk þú að læk einum, er rennur skammt héðan; í honum muntu sjá silung. Þú skalt leggja þig niður að læknum, þar sem silungurinn er, og drekka úr honum og sjá svo til, að hann renni um leið í munn þér, og muntu strax eftir fá getnað með manni þínum; við munum heimsækja þig um þann tíma, er þú fæðir barnið, því við viljum ráða því, hvað það skal heita." Síðan hurfu þær burtu.
Þegar hún vaknaði, íhugaði hún drauminn, gekk að læknum og sá silunginn; hún fór að öllu eins og henni var sagt og fór síðan heim. Þegar fram liðu stundir, fann hún, að hún var orðin þyngri, og urðu þau bæði glöð mjög við það.
Skammt þar frá var lítill húsabær; þar bjuggu karl og kerling og áttu dóttur eina unga og efnilega, sem hét Helga. Þegar frú hertogans fann, að leið að þeim tíma, að hún skyldi verða léttari, gjörði hún boð til kerlingar að koma til sín, og gjörði hún það þegar.
Þá mælti hún til hennar: "Þú skalt þjóna mér og sitja yfir mér, meðan ég er veik; ég á von á þremur konum, og skaltu taka á móti þeim sem best þú getur; hef ég haft tilbúið handa þeim ölföng og annað."
Skömmu síðar fæddi hún mjög fagra mey, og sama daginn, sem hún fæddi hana, komu þar að húsunum þrjár konur og nefndu sig allar Blákápur. Kerling gekk fyrir þær og bauð þeim til borðs og bar fyrir tvær, eins og frúin hafði sagt henni, en það, sem hinni yngstu var ætlað, dró hún undir sig. En er hún sá, að hún var óvirt hjá hinum, fylltist hún reiði.
Þær báðu um að lofa sér að sjá barnið, og var þeim þegar leyft það. Hin elsta tók fyrst við barninu og mælti: "Þú skalt heita Mærþöll eftir móður minni; mæli ég það um, að þú verðir afbragð allra kvenna að áliti og vitsmunum; legg ég það á þig, að hvert það skipti, er þú grætur, verði tár þín öll að gulli; skaltu hafa það yfir allar konur, sem verið hafa."
Síðan fékk hún barnið systur sinni, sem sat hjá henni, og mælti hún: "Ég er því samþykk, að þú heitir Mærþöll eftir móður minni, og óska ég, að þú hreppir allt það gott, er systir mín hefur mælt fyrir þér, og að þú sér prýdd öllum kvendyggðum; mæli ég það um, að þú eignist ágætan kóngsson og unnið hvort öðru vel, svo þér verði allt til sóma og virðingar um ætt þína; kann ég ekki framar að mæla fyrir þér."
Síðan fær hún meyna yngstu systur sinni, hún tók við henni og mælti: "Þú skalt þess af mér njóta, að þú heitir Mærþöll eftir móður minni, að ég vil eigi rjúfa hin góðu ummæli, er systur mínar hafa fyrir þér mælt, þó móðir þín hafi gjört mér óvirðingu saklausri. Skaltu nú þó hennar gjalda að nokkru, því það legg ég á þig, að hina fyrstu nótt, sem þú sefur hjá kóngssyninum, sem þú átt að eignast, verðir þú að tittlingi og fljúgir út um gluggann. Skaltu aldrei úr þeim álögum komast, ef þér leggst það eigi til, að nokkur geti brennt tittlingshaminn hina þriðju nótt. Skaltu þær þrjár nætur geta farið úr hamnum litla stund, en aldrei síðan."
Þegar systur hennar heyrðu þetta, urðu þær mjög reiðar við hana, er hún mælti svo illa fyrir barninu, og stukku á fætur í burtu og sáust aldrei síðan.
Barnið óx upp hjá föður og móður; varð það að sönnu, að í hvert skipti, sem það grét, urðu tár þess að gulli. Af þessu varð hertoginn ríkur mjög, því öll borg hans var þakin gulli, og þótti honum vænt um dóttur sína. Lét hann gjöra henni skemmu og lét Helgu karlsdóttur vera þar hjá henni. Þeim féll hvorri við aðra mjög vel. Fréttist það um öll lönd, að hertogadóttir ein gréti ávallt gulli.
Þetta spurði voldugur kóngsson nokkur sem aðrir; hann strengdi þess heit, að hann skyldi eignast hana eða að öðrum kosti enga konu. Hann bjó ferð sína sem skjótast og sigldi land úr landi, uns hann kom til hertogans. Sá hann þá, að þar var allt gulli þakið. Hann sendi frá skipi sínu til hans og lét segja honum, hvað erindi sitt væri þangað. Hann tók því vel og bauð honum heim með mönnum sínum, en var þó hugsjúkur, að hann skyldi missa dóttur sína.
Hann lét kalla hana ásamt með Helgu fyrir sig og mælti: "Þið skuluð hafa klæðaskipti; skaltu, Helga, ganga fyrr en Mærþöll, þegar kóngsson kemur." Þær lofuðu að gjöra svo sem hann sagði fyrir.
Þegar kóngsson kom til borgarinnar, bað hann um að lofa sér að sjá Mærþöll. Hertoginn kvað svo skyldi vera. Helga gekk fyrir kóngsson; hann horfði lengi á þær báðar og þótti sú vænni, er síðar gekk. Hann mælti:
"Ég vil reyna, hvort það er satt, er ég hef heyrt af dóttur þinni," og sló þær báðar kinnhest. Þá grét sú, sem fyrr gekk, sem aðrar konur, en gull hrundi ofan um hina.
Þá mælti kóngsson: "Nú sé ég, að hertoginn hefur ætlað að pretta mig, og er það Mærþöll, sem síðar gengur." Hann sagði henni, að hún þyrfti eigi lengur að dyljast og að hún skyldi skipta um klæði aftur, og setti hana í kné sér. Síðan sigldi hann burt með hana. Hún hafði í heimanmund mestallt það gull, er þar var. Helga karlsdóttir fór með henni. Þau fengu góðan byr heim til ríkis föður hans. Hann tók við þeim báðum höndum og lét þegar búa til hins veglegasta brúðkaups; veislan fór vel fram.
En er brúðurin var leidd til sængur, beiddi hún leyfis, að hún mætti einslega ganga út og Helga karlsdóttir með sér. Henni var leyft það.
Hún mælti þá við Helgu: "Þú hefur mér lengi verið trú, og bið ég þig nú að reynast mér holl og sofa þrjár nætur í armi kóngssonar, því það mun verða að koma fram á mér, sem á mig er lagt; skulum við nú skipta um liti og klæði."
Helga mælti: "Ég vil gjöra allt, sem ég get, þér til vilja, en eitt óttast ég mest; þú veist, að kóngsson fær þér klút á hverju kveldi, sem þú fyllir af gulli með tárum þínum og færð honum á hverjum morgni. Nú veit ég, að það gildir líf mitt, er ég get ei skilað honum gullinu."
Hún mælti: "Þú skalt stinga honum svefnþorn, er þið eru háttuð saman, svo hann sofni brátt. Far síðan heimuglega út frá honum og gakk á þann hól, sem er skammt héðan, og kalla til mín, svo ég geti heyrt. Er mér leyft að fara úr hamnum þrjár nætur, og kann ég að gráta fyrir þig, meðan við tölum saman."
Helga kvaðst fúslega vilja gjöra hið besta, sem hún gæti, til að hjálpa henni.
Síðan skiptu þær klæðum og urðu báðar mjög harmþrungnar. Helga háttaði hjá kóngssyni, en Mærþöll breiddi á þau klæði; varð hún þegar að tittlingi og flaug burt. Kóngsson hugði, að Mærþöll svæfi hjá sér, og fékk henni klút sinn að gráta í. Helga stakk honum svefnþorn og fór síðan leynilega á fætur. Hún gekk upp á hól þann, er þær höfðu talað um, og kallaði:
- "Komi, komi Mærþöll,
- komi mín vina,
- komi ljósa mær
- á lynggötu;
- eg á gull að gjalda,
- en gráta ekki má."
Þar kom tittlingur og settist hjá henni. Gekk Mærþöll þá úr hamnum og grét klútinn fullan. Hún hvarf síðan undir eins í haminn aftur, en Helga lagðist í rekkju hjá kóngssyni og fékk honum gullið að morgni. Fór allt á sömu leið hina aðra nótt.
Þriðju nóttina stakk Helga kóngssyni nokkuð lausara en fyrr með vilja, fór síðan á fætur, gekk upp á hólinn og kallaði sem fyrr; þá kom tittlingurinn.
Mærþöll sagði þá til Helgu: "Nú munum við aldrei sjást framar, því nú hef ég enga von um að komast úr þessum álögum. Þakka ég þér nú alla tryggð, er þú hefur sýnt mér, og farðu alltaf vel; vildi ég helst, að þú nytir kóngssonar, ef ég mætti ráða." Lágu þær nú lengi í faðmlögum, því þeim þótti mikið fyrir að skilja.
Nú er þess að geta, að kóngsson vaknaði, því svefnþorninn datt úr höfði hans. Varð honum bilt við, er brúðirin var burtu, hljóp á fætur og út. Hann litaðist um og sá tvær konur á hól einum. Hann gekk þangað leynilega og heyrði, hvað þær sögðu.
Hann sá þar tittlingshaminn og greip hann. Urðu þær þá báðar svo hræddar, að þær féllu í öngvit. Hljóp hann með haminn og brenndi hann sem skjótast, kom síðan til þeirra aftur og dreypti á þær víni og leiddi heim með sér.
Mærþöll sagði þá ævisögu sína. Þótti öllum hún hafa verið heppin, er kóngsson náði hamnum. Var nú á ný drukkið brúðkaup, og bar ekki neitt á neinu eftir það. Kóngsson unni Mærþöllu mjög, áttu börn saman og lifðu með góðu yndi.
Helga giftist hinum æðsta höfðingja í ríkinu, og var hún jafnan haldin ágæt sökum tryggðar við Mærþöll, og lýkur hér sögunni um Mærþöll.
Netútgáfan - febrúar 1998