SAGAN  AF  LÍNEIK  OG  LAUFEY



Í fyrndinni réð kóngur og drottning fyrir einu voldugu og víðlendu ríki. Ekki er getið um nöfn þeirra, en frá hinu er sagt, að þau áttu tvö börn, son og dóttur, bæði frumvaxta, þegar saga þessi gerðist. Hét kóngssonurinn Sigurður, en dóttirin Líneik; voru þau bæði vel að sér bæði til munns og handa, svo varla fundust þeirra líkar, þó víða væri leitað. Þau unnust svo heitt, að hvorugt mátti af öðru sjá, og lét kóngur byggja þeim skemmu eina, mjög vandaða og vel gjörða, og fékk þeim þjónustufólk eftir þörfum.

Liðu svo fram tímar, að ekkert bar til tíðinda, þangað til að því kemur, að drottning tekur sótt mikla. Lætur hún þá kalla kóng á sinn fund og segir honum ætlun sína, að þessi sótt muni leiða sig til bana.

"Eru það tvær bænir, sem ég vil biðja þig," segir drottning, "áður en ég dey, og vona ég, að þú munir hafa þær hugfastar; sú fyrri er, að ef þú leitar þér kvonfangs aftur, þá leita þú ekki eftir því í smábæjum eða úteyjum, heldur í stórborgum eða þjóðlöndum; mun þér það vel gefast. Hin bænin er sú, að þú leggir allan hug á að ala önn fyrir börnum okkar. Grunar mig, að þér verði að þeim mest gleði allra manna hér eftir."

Þegar drottning hafði þetta mælt, andaðist hún; bar hann sig mjög aumlega eftir fráfall hennar og sinnti lítið ríkisstjórn.

Eftir nokkurn tíma var það einn dag, að hinn æðsti ráðgjafi gekk fyrir kóng og bar upp þau vandkvæði lýðsins, að ríkisstjórnin færi öll í ólestri og að hann sinnti ekki stjórnarstörfum sökum harms og trega eftir drottningu sína; "og er hitt konunglegra," segir ráðgjafi, "að herða upp hugann og hyggja af hörmum sínum, en leita þess ráðs, sem þér væri sæmd og virðing í."

"Slíkt er allmikið vandamál," segir kóngur, "en fyrst þú hefur hér orði á komið, þá er best þú fáir virðinguna og vandann af þessu; vil ég fela þér að leita mér þess kvonfangs, sem mér sé sæmd í, en það vil ég áskilja, að þú kjósir mér ekki konu úr smábæjum eða úteyjum." Er nú ferð ráðgjafans þegar búin með hinum bestu föngum og fögru föruneyti.

Siglir hann svo frá landi, og þegar hann hefur nokkra stund farið leiðar sinnar, gerir á hann svo mikla þoku, að hann veit ekkert, hvar hann er. Hrekst hann í þessum hafvillum heilan mánuð, svo hann finnur hvergi land, en þegar hann varir síst, verður fyrir honum land nokkurt, sem hann þekkir ekki. Hittir hann á góða höfn og setur tjöld á land. Verða þeir þar engra manna varir og ætla því, að þetta sé eyðieyja.

Þegar menn höfðu tekið á sig náðir, gengur ráðgjafinn einn á land upp; hefur hann skammt gengið, þegar hann heyrir hljóðfæraslátt svo fagran, að hann þykist aldrei hafa heyrt þvílíkan. Gengur hann nú á hljóðið, þangað til hann kemur í skógarrjóður eitt; þar sér hann konu sitja á stóli, svo fagra og tígulega, að hann þykist aldrei þvílíka fegurð séð hafa; hún lék svo vel á hörpu, að unun var að heyra, en við fótskör hennar sat mær ein forkunnar fögur og söng undir.

Ráðgjafinn heilsar konunni mjög kurteislega, en hún stendur upp á móti honum og tekur kveðju hans mjög blíðlega. Konan spyr ráðgjafann, hvernig á ferðum hans standi og hverra erinda hann fari, en hann segir henni hið ljósasta, hvernig standi á högum kóngs og hver erindi sín séu.

"Það er þá líkt á komið með mér og kóngi," segir konan; "ég var gift einum ágætum kóngi, sem réð fyrir þessu landi, en víkingar komu og drápu hann og lögðu landið undir sig, en ég flúði á laun með mey þessa, og er hún dóttir mín."

En þegar mærin heyrði þessi orð, segir hún: "Segirðu nú satt?" en konan rak henni löðrung og mælti: "Mundu, hverju þú lofaðir."

Ráðgjafinn spyr konuna að heiti, en hún kvaðst heita Blávör, en dóttir sín sagði hún héti Laufey. Ráðgjafinn talar nú nokkra stund við konuna, og finnur hann þá, að hún er vitur og vel að sér, og hugsar með sér, að hann muni aldrei komast í betra færi með að fá kóngi sínum kvonfang en hér.

Hefur hann þá bónorðið og biður Blávarar til handa kóngi; er það auðsótt, og kveðst hún þegar vera ferðbúin að fara með honum, "því ég hef," segir hún, "alla mína góðgripi með mér, en föruneyti hirði ég ekki um að hafa nema Laufey dóttur mína."

Er það ekki að orðlengja, að Blávör fer með ráðgjafanum til strandar og þær báðar; lætur hann þegar svipta tjöldum, halda til skipa og vinda upp segl í snatri. Er nú þokunni aflétt, og sjá þeir, að þetta er eyðisker eitt lítið með hömrum allt í kring, en þeir gefa því engan gaum. Rennur þegar á blásandi byr.

Þegar þeir hafa siglt í sex daga, sjá þeir land fyrir stafni og þekkja, að þeir eru komnir fyrir höfuðborg kóngs síns. Varpa þeir þegar akkerum og ganga á land. Sendi ráðgjafinn þá heim til borgarinnar að boða komu sína.

Verður kóngur harla glaður og býr sig hinum besta tignarskrúða sínum til þess að taka á móti festarkonu sinni með fríðu föruneyti. En þegar hann er kominn á miðja leið til skipanna, mætir ráðgjafinn honum og leiðir sína konuna við hverja hönd sér; voru þær búnar fögrum klæðum og hinu mesta skrauti. Þegar kóngur lítur allt þetta skraut og ljóma, verður hann frá sér numinn af gleði; þykist hann himin höndum tekið hafa, þegar hann veit, að eldri konan er honum föstnuð, því hún var enn álitlegri. Fagnar hann ráðgjafanum og þeim mæðgum með hinni mestu blíðu og gáir þess ekki fyrir gleði sakir að spyrja, hvaðan af landi þær séu.

Fylgir hann þeim til borgarinnar og lætur búa hin ágætustu herbergi handa þeim. Er síðan búist við brúðkaupi og boðið til þess öllu stórmenni; en ekki er þess getið, að kóngsbörnunum, Sigurði og Líneik, væri boðið, enda höfðu þau ekki enn komið á fund Blávarar, en kóngur sinnti þeim lítið og gáði einskis annars en að sitja á tali við drottningarefnið. Fór svo brúðkaupið fram með hinni mestu prýði og viðhöfn, og þegar það var á enda, voru allir út leystir með ágætum gjöfum, en kóngur settist að ríkjum í náðum.

Líða svo fram nokkrir tímar, að ekki ber til tíðinda; tekur drottning við ríkisstjórn ásamt kóngi, og þykir hún þá brátt öllu spilla. Gerist hún mjög einráð og drottnunargjörn, og fer kóngur að sjá, að sér muni vera minni fengur í kvonfanginu en hann hélt í fyrstu. Ekki skipti drottning sér af þeim systkinum, Sigurði og Líneik, enda komu þau ekki á hennar fund, heldur héldu til í skemmunni nætur og daga.

Ekki mjög löngu eftir að drottning hafði tekið við ríkisstjórn með manni sínum, verða menn þess varir, að hirðmenn hverfa, einn og einn, og veit enginn, hvað af þeim verður. Gefur kóngur þessu engan gaum, en tekur sér nýja hirðmenn; fer svo fram um hríð.

Einhverju sinni kemur drottning að máli við kóng og segir, að honum muni mál að heimta saman skatta af ríki sínu. "Mun ég gæta ríkisins, á meðan þú ert burtu," segir hún.

Kóngur varð fár við, en þorði þó varla annað en hlýða drottningu sinni; svo var hún þá orðin ráðrík og ill viðskiptis. Býr nú kóngur ferð sína úr landi á fáeinum skipum og er mjög dapur í bragði, en þegar hann er albúinn, gengur hann í skemmu barna sinna, og heilsar hann þeim, en þau taka honum blíðlega.

Hann varpar öndinni mæðilega og segir: "Ef svo fer, að ég komi ekki aftur úr ferð þessari, grunar mig, að ykkur muni hér ekki lengi vært; vil ég svo fyrir mæla, að þið flýið burt á laun, þegar þið eruð orðin vonlaus um mína afturkomu. Skuluð þið halda í austur, og munuð þið þá innan skamms koma að fjalli einu háu og bröttu. Þið skuluð reyna að klifra upp á fjallið, og þegar þið eruð komin yfir það, mun langur fjörður verða fyrir ykkur. Við botninn á firðinum standa tvö tré, annað grænt, en hitt rautt. Trén eru hol innan, og er svo um búið, að loka má aftur, svo engin merki séu að utan. Þið skuluð fara inn í trén, sitt í hvort, og mun þá ekkert geta grandað ykkur."

Eftir það kveður kóngur börn sín og snýr á burt og er mjög hryggur. Heldur hann nú til skipa, vindur upp segl og siglir úr landi. En þegar hann hefur siglt skamma stund, lýstur á svo miklu ofviðri, að engu verður við ráðið; fylgdu þessum stormi eldingar og reiðarþrumur og svo mikil býsn og undur, að enginn hafði slíkt séð. Er þar fljótast frá að segja, að öll skipin brotnuðu í spón, og fórst kóngur þar með öllu liði sínu.

Þá sömu nótt, sem kóngur týndist, dreymir Sigurð kóngsson, að honum þykir faðir sinn koma alvotur inn í skemmuna, taka kórónuna af höfði sér og leggja hana fyrir fætur sér og ganga síðan þegjandi út aftur. Sigurður segir Líneik drauminn, og þykjast þau nú vita, hvar komið sé; búa þau sig sem hraðast til burtferðar með gripi sína og klæði, en engan fylgdarmann taka þau.

Síðan halda þau á laun út úr borginni eftir tilvísun föður síns. En þegar þau eru komin að fjallinu, verður þeim litið aftur; sjá þau þá, hvar stjúpa þeirra kemur á eftir þeim og er heldur ófrýnleg í bragði. Sýnist þeim hún líkari trölli en mönnum. Skógur mikill var undir fjallshlíðinni, sem þau höfðu farið í gegnum, og taka þau það ráð, að þau kveiktu í skóginum, svo hann stóð í björtu báli, og kemst Blávör ekki lengra en að bálinu, og skilur þar með þeim.

Klifra þau systkin upp á fjallið, og gengur þeim það næsta erfitt. En þó fer svo um ferðir þeirra sem faðir þeirra hafði sagt fyrir, þau finna trén og fara sitt í hvort. Var svo um búið, að þau gátu bæði séð hvort til annars og talað saman sér til skemmtunar.

Víkur nú sögunni til annarra atburða. Fyrir Grikklandi réð þennan tíma einn voldugur og ágætur kóngur. Ekki er getið um nafn hans. Hann átti tvö börn við drottningu sinni, son og dóttur, og eru þau ekki heldur nefnd. Þau voru bæði væn og vel gefin og umfram aðra menn á þeim tímum að fríðleik og atgjörvi.

Þegar kóngsson er því nær frumvaxta, heldur hann í hernað til að afla sér fjár og mannvirðingar; rekur hann hernað nokkra stund á sumrum, en situr heima í Grikklandi um vetur. Í þessum herferðum sínum heyrir hann oft getið um Líneik kóngsdóttur, að hún sé afbragð allra annarra kvenna að fríðleik og atgjörvi. Ræður hann það þá einhverju sinni af, að hann siglir í bónorðsför til Líneikar.

Þegar hann kemur að landi, veit Blávör af fjölkynngi sinni fyrir komu hans; býr hún sig því og dóttur sína hinu fegursta skrauti og gengur til strandar móti kóngssyni. Kóngsson tekur þeim mæðgum blíðlega og spyr tíðinda. Drottning segir honum með miklum harmi frá því, að maðurinn sinn hafi farist með öllu liði sínu, þegar hann hafi verið að heimta skatt af löndum sínum, og er hún mjög sorgbitin og áhyggjufull.

Kóngsson spyr eftir Líneik kóngsdóttur. En drottning segir, að það sé þessi mær, sem hún leiði við hönd sér. Kóngsson lætur sér fátt um finnast og segist hafa ætlað, að hún mundi vera miklu fríðari. Drottning segir, að það sé eðlilegt hún sé döpur í bragði og fölleit af svo miklum harmi sem hún hafi beðið í missi bróður síns og föður: Kóngssyni þykir það og alllíklegt; fer þá svo, að hann hefur upp bónorðið, og er það auðsótt hjá þeim mæðgum. Býr svo kóngsson aftur ferð sína heim sem bráðast með meyna og ætlar, að það sé Líneik. Vill drottning fara með, en kóngsson vill það ekki, og verður svo að vera sem hann vildi.

Þegar hann er skammt kominn frá landi, gerir á hann hafvillu, svo hann veit ekki fyrri til en hann er kominn inn á einn fjörð langan. Kóngsson skýtur báti fyrir borð og heldur á land; sér hann standa tvö tré við fjarðarbotninn svo fögur, að hann þykist aldrei hafa séð jafnfögur tré. Hann lætur höggva upp trén og flytja þau til skipa, og með því þokunni er þá af létt, vindur hann upp segl og siglir sem hraðast heim til Grikklands.

Leiðir hann festarmey sína heim til borgar og lætur veita henni alla sæmd; fær hann henni sitt eigið svefnherbergi til íbúðar, og skal hún sitja þar á daginn, en vera í skemmu kóngsdóttur um nætur.

Kóngsson hefur svo miklar mætur á trjánum fögru, að hann lætur flytja þau í svefnherbergi sitt og reisa annað upp til höfðalags við rekkju sína, en annað til fóta.

Þegar hann hefur komið öllu þessu til leiðar, er búist við brúðkaupi. Fær hann Líneik, sem reyndar var Laufey, efni í þrennan klæðnað handa sér, bláan, rauðan og grænan, og mælir svo fyrir, að öll klæðin skuli albúin, áður en brúðkaup þeirra væri haldið. Fyrst átti hún að gera bláu klæðin, því næst hin rauðu og seinast hin grænu, enda áttu þau að vera best gerð af þeim öllum; "mun ég sjálfur bera þau á brúðkaupsdegi okkar," mælti kóngsson.

Laufey tekur við klæðinu, en kóngsson gengur á burt. Setur nú að henni grát mikinn, því Blávör kerling hafði ekki kennt henni hannyrðir; hafði hún aldrei setið við sauma á ævi sinni og allra síst svo vandaða sem þessir voru, svo hún þykist vita það fyrir víst, að þegar hún getur ekki lokið klæðagerðinni, muni kóngsson reka sig í burt með smán og fyrirlitningu og jafnvel drepa sig, og fær það henni mikillar hryggðar.

Þau systkin, Sigurður og Líneik, sátu nú í trjánum, eins og áður er sagt; sjá þau allt, hvað gerist í svefnherbergi kóngssonar, og heyra harmatölur Laufeyjar; kemst Sigurður kóngsson mjög við af þeim og segir til systur sinnar:

"Líneik systir!
Laufey grætur.
Bættu um borða,
ef betur þér lætur."

Líneik svarar:

"Manstu ekki
fjallið háva,
brekkuna bröttu
og bálið undir."

En svo fær Sigurður talið um fyrir Líneik, að hún fer út úr trénu og sest að saumum með Laufey. Ljúka þær nú við fyrsta klæðnaðinn, og er Laufey næsta glöð yfir, hvað hann er vandaður og vel gerður.

Fer þá Líneik inn í tréð aftur, en Laufey færir kóngssyni klæðnaðinn; hann lítur á og mælti: "Aldrei hef ég séð jafngóð klæði og vel gjör sem þessi, og far þú nú til með rauðu klæðin, og lát þau vera að því skapi betur gerð en þessi sem efnið er kostulegra."

Fer nú Laufey aftur til herbergisins, sest niður og fer að gráta. Sigurður kóngsson kallar þá til systur sinnar hinum sömu orðum og fyrr og segir:

"Líneik systir!
Laufey grætur.
Bættu um borða,
ef betur þér lætur."

En hún svarar:

"Manstu ekki
fjallið háva,
brekkuna bröttu
og bálið undir."

En svo fór sem fyrri; að Líneik fer úr trénu og sest að saumum. Gerir hún nú þessi klæðin miklu vandlegar en hin; voru þau öll gulli saumuð og sett gimsteinum, og þegar þeim var lokið, fær hún Laufey klæðin og segir, að hún skuli færa kóngssyni þau, en fer sjálf inn í tréð.

Laufey gengur á fund kóngssonar með klæðin og færir honum; hann lítur á þau og segir: "Miklu eru þessi klæði betur gerð en líkindi sé til, að þú hafir ein fjatlað um þau; grunar mig, að fleiri en ég veit muni hafa lagt hönd á þau. Farðu nú, og gerðu hin þriðju klæðin, og vertu búin á þriggja nátta fresti; skulu þau bera af hinum eins og gull ber af eiri; mun ég og bera þau á okkar brúðkaupsdegi."

Gengur Laufey til herbergis síns, sest niður og grætur. Sigurður kóngsson kemst mjög við af harmatölum hennar og talar við systur sína eins og fyrr. Er ekki að orðlengja það, að Líneik fer út úr trénu, þó hún sé nauðug, og tekur til sauma með Laufey, og er nú miklu meir borið í klæðin en fyrr, og má svo að orði kveða, að hvergi sæi í klæðið fyrir gullrásum og gimsteinum.

En á hinum þriðja degi vita þær Líneik og Laufey ekki fyrr en kóngssyni vindur þar inn. Verður Líneik mjög hverft við og ætlar að komast inn í tréð, en kóngsson verður fyrri til, þrífur í klæði hennar, setur hana hjá sér og segir: "Það hefur mig lengi grunað, að hér væri brögð í tafli, og seg mér nafn þitt."

Líneik sagði honum hið sanna og einnig, hverrar ættar hún væri. Kóngsson leit þá mjög reiðuglega til Laufeyjar og sagði, að hún væri þess makleg, að hún væri kvalin hinum verstu kvölum fyrir gabb sitt og lygi.

Laufey féll til fóta kóngssyni og bað hann vægðar: "Hef ég," segir hún, "í engu öðru gabbað þig en í klæðagjörðinni, af því Líneik lagði svo ríkt á við mig að leyna því, hver þau hefði gert. Máttu muna það, að ég hef aldrei sagt þér, að ég væri Líneik kóngsdóttir, heldur var það móðir mín, sem svo er kölluð, sem hefur gabbað þig."

Meðan þau voru að ræða um þetta, kemur Sigurður kóngsson út úr trénu. Verður þar fagnaðarfundur með þeim öllum saman, og er það fljótt frá að segja, að kóngsson hefur bónorð að nýju og biður Líneikar handa sér, en hún svarar því, að hún muni engum lofast, fyrr en stjúpa sín sé af dögum ráðin.

Segir nú Laufey upp alla sögu, að Blávör sé hið argasta tröll og hafi ráðið fyrir ey þeirri, sem hún var í, þegar ráðgjafinn kom til hennar. Átti hún byggð í stórum helli þar og fjöldi annarra trölla. "En ég er," mælti hún, "kóngsdóttir úr nágrenninu; nam Blávör mig á burt á laun og kvaðst mundi drepa mig, nema ég sannaði öll orð hennar; hlaut ég að lofa þessu heldur en að missa lífið. Kallaði hún mig dóttur sína og ætlaði að gera það líklegt með því, að hún væri kóngborin.

Hefur Blávör valdið dauða kóngsins föður ykkar; olli hún og því hinu mikla mannhvarfi í borg föður ykkar; tók hún þá og át á nóttunni, og er það eðli trölla. Er það ætlan hennar að eyða öllu fólki af ættjörð ykkar og byggja hana síðan tröllahyski sínu."

Þeir kóngsson og Sigurður safna mönnum sem skjótast og búast á burtu. Segir ekki af ferðum þeirra, fyrr en þeir koma að höfuðborg þeirri, sem Blávör réð fyrir; koma þeir öllum á óvart, og var fátt manna fyrir, því allan fjöldann hafði Blávör drepið, en sumir voru flúnir úr borginni sökum tröllskapar hennar. Verður þá ekki af vörn, og er Blávör tekin höndum; verður hún þá mjög illileg, en þeir gefa henni engin grið, lemja hana grjóti til bana og brenna hana síðan á björtu báli.

Snúa þeir síðan heim til Grikklands, og þegar þeir koma þangað, er búist við brúðkaupi og boðið öllu stórmenni. Í þeirri veislu hefur Sigurður bónorð sitt til kóngsdótturinnar frá Grikklandi, og er það auðsótt, og eru þannig bæði brúðkaupin haldin í einu. Þegar veislunni var lokið, eru gestirnir leystir út með ágætum gjöfum.

Sest nú Sigurður að ríkjum þar í Grikklandi, en kóngsson og þau Líneik héldu til föðurleifðar hennar og tóku þar við ríkisstjórn. Urðu allir menn því fegnir, að afsprengur hins fyrra kóngs var kominn þar til valda. Laufey fór með Líneik, og var henni útvegað sæmilegt gjaforð, og tók hún síðan við föðurleifð sinni, því faðir hennar hafði látist af harmi eftir hana.

Stýrðu allir þessir kóngar ríkjum sínum lengi og vel í náðum, og lýkur svo þessari sögu.



Netútgáfan - febrúar 1998