Það voru einu sinni hjón á bæ. Þess er ekki getið, að þau hefðu fólk nema einn vinnumann. Þegar fram liðu stundir, fór konan að taka það upp að sofa öllum dögum. Þetta þótti þeim bónda og vinnumanni undarlegt, því að þeir vissu ekki annað en að hún svæfi á nóttunni líka. Nú hugsaði vinnumaður sér, að hann skyldi reyna að vaka komandi nótt og vita þá, hvort hún svæfi.Um kvöldið hátta nú allir eins og vant var, en vinnumaður sofnar ekki. Hann snýr sér nú fram og gætir vel að konunni. Þegar hún heldur, að þeir séu sofnaðir, rís hún upp og klæðir sig, tekur síðan glas með einhverju í og dreypir á bónda og fer svo fram. Vinnumaður rís nú upp og læðist á eftir henni. Þegar hún kemur fram í bæjardyrnar, tekur hún þar svarta vettlinga og lætur upp á sig.
Gengur svo út á hlaðið, baðar út höndunum og segir: "Upp og fram, en hvergi niður," og þá strax hefst hún á loft í krafti þessara orða.
"Upp og fram og hvergi niður," segir vinnumaður, og með það fer hann upp líka. Svo líða þau yfir lönd og sjó, þangað til þau koma á völl einn. Eftir það gengu þau stundarkorn, þar til þau koma að dálitlu húsi. Þar gekk konan inn og vinnumaður á eftir. Síðan settist hún niður við borð eitt, sem þar var. Vinnumaður settist líka þar niður utar við. Á borðinu logaði dálítil ljóstýra.
Nú leið ekki langur tími, þangað til grá loppa kemur upp á borðið með steinspjöld og stíla. Þau taka við sínu spjaldinu hvort, eins og hinir fleiri, sem þar sátu allt í kring við borðið. Nú fóru allir að klóra eitthvað, en vinnumaðurinn skrifaði Jesú nafn á spjaldið sitt.
Undir daginn leggja nú allir spjöldin á borðið, og loppan sama tekur þau nema spjald vinnumannsins, það lá eftir á borðinu. Nú stendur konan upp og gengur út. Vinnumaðurinn fer á eftir henni.
Þegar hún kemur út, þá setur hún upp vettlinga sína eins og fyrr og segir: "Upp og fram, en hvergi niður."
"Í krafti þessara orða: Upp og fram, en hvergi niður," segir vinnumaður. Þá hefjast þau á loft og líða yfir sjó og lönd, þangað til þau eru komin heim á hlaðið. Þar tekur hún af sér vettlinga sína, skilur þá eftir þar einhvers staðar í bæjardyrunum og gengur svo inn.
Um daginn segir vinnumaður bónda frá þessu öllu saman og segir, að hann skuli nú bera sig að sofna ekki í kvöld, en muna sig um það að láta sín ekki við getið.
Um kvöldið leggur bóndinn sig til svefns, eins og hann var vanur, og lætur sem hann sofni. Þegar konan heldur, að þeir séu nú sofnaðir, þá fer hún að örla sér. Þá læzt bóndi vakna og spyr, hvað þetta eigi að þýða og hvað hún ætli.
Konan verður nú eins og hálf-sneypt og svarar engu. Bóndi segir þá, að það sé ekki eins og hún haldi, að hann viti ekki um ferðalag hennar. Hann viti það vel, og megi hún leggja slíkt háttalag niður, annars skuli hún fá að mæta töluverðu misjöfnu. Eftir þetta lét konan af þessu framferði sínu og hagaði sér almennilega.
(Þjóðsögur og munnmæli - Jón Þorkelsson)
Netútgáfan - nóvember 2000