Einu sinni voru kóngur og drottning í ríki sínu. Þau áttu sér eina dóttur sem Ingibjörg hét og einn son er Hringur hét. Hann var hugdirfskuminni en tignir menn gerðust á þeim tíma og enginn var hann íþróttamaður.Þegar hann var tólf ára reið hann á skóg með mönnum sínum einn góðan veðurdag að skemmta sér. Þeir ríða lengi þar til þeir sjá hind eina með gullhring um hornin. Kóngsson vill ná hindinni ef kostur væri. Þeir veita henni eftirför og ríða hvíldarlaust þangað til allir eru búnir að sprengja hesta sína og loks springur hestur kóngssonar líka. Þá laust yfir þoku svo svartri að þeir gátu ekki séð hindina. Voru þeir þá komnir mjög langt frá öllum mannabyggðum og vildu fara að halda heim á leið aftur en voru farnir að villast. Gengu þeir nú allir samt það sem horfði þangað til hverjum fór að þykja sinn vegur réttur. Skildu þeir þá og fór sinn í hverja áttina.
Nú er að segja frá kóngssyni að hann er villtur eins og hinir og ráfar eitthvað í ráðleysu þangað til hann kemur í dálítið rjóður skammt frá sjó. Þar sér hann hvar kona situr á stóli og tunna mikil stendur þar hjá henni.
Kóngsson gengur til konunnar og heilsar henni kurteislega. Hún tekur þægilega kveðju hans. Þá verður honum litið ofan í tunnuna og sér hvar óvenjulega fallegur gullhringur liggur á tunnubotninum. Kviknar þá hjá honum ágirnd á hringnum og getur ekki haft af honum augun. Þetta sér konan og segist sjá að hann hafi hug á gullinu sem sé í tunnunni. Hann segir svo vera. Hún segir að hann megi eiga það ef hann vilji vinna til að ná því. Hann þakkar henni fyrir og segir að það sé nú minnst vert að ná því. Fer hann þá að teygja sig ofan í tunnuna, er honum virtist ekki djúp, og ætlar að verða fljótur að taka hringinn en tunnan dýpkaði eftir því sem hann seildist lengra.
Þegar hann var kominn hálfur inn af barminum stendur konan upp, stingur honum á höfuðið ofan í tunnuna og segir að hann skuli þá gista þarna. Síðan slær hún botn í tunnuna og veltir henni fram á sjó.
Kóngssyni þykir nú illa komið fyrir sér. Hann finnur að tunnan flýtur eitthvað frá landi og veltist lengi í öldunum, en ekki vissi hann hvað marga daga, þangað til hann finnur að hún naggrar við klöpp. Glaðnar þá dálítið yfir kóngssyni því hann hugsar að þetta muni vera land heldur en sker. Honum kemur nú til hugar að reyna að spyrna botninum úr tunnunni því hann var dálítið syndur. Hann ræður þetta af þó hann hins vegar væri hræddur um slæma landtöku. En það var öðru nær því sléttar klappir voru þar við sjóinn svo honum gekk vel að komast á land en há björg voru fyrir ofan.
Vill hann nú komast eitthvað upp frá sjónum þótt torsótt sýndist og gengur stundarkorn fram með björgunum þar til hann fer að reyna að klifra upp og tekst honum það um síðir. Þegar hann var kominn upp litast hann um og sér að það er ey sem hann er í kominn. Hún er skógi vaxin og frjósöm og sá hann þar vaxa epli, góð átu. Þótti honum þarna skemmtilegt að því er landið snerti.
Þegar hann hafði verið þar nokkra daga heyrði hann eitt sinn hark mikið í skóginum. Varð hann þá ákaflega hræddur og hljóp í skóginn til að reyna að fela sig. Hann sér nú hvar risi kemur með viðarsleða og stefnir á hann. Hann hafði þá engin önnur ráð en að fleygja sér niður þar sem hann stóð.
Þegar risinn fann hann stóð hann dálitla stund kyrr og horfði á kóngsson. Síðan tók hann hann í fang sér, bar hann heim til sín og var honum óvenjulega góður. Gefur hann nú sveininn kerlingu sinni er nær því var karlæg. Kvaðst hann hafa fundið barn þetta í skóginum og skyldi hún hafa það til vika í kringum sig. Kerlingu þótti ósköp vænt um þetta og fór að klappa kóngssyni með miklum blíðmælum.
Hann dvelst nú þarna hjá þeim og er þeim mjög þægur og eftirlátur í öllu er þau beiddu hann enda voru þau honum hvern daginn öðrum betri. Einn dag fer risinn með hann og sýnir honum í allar hirslur sínar nema í eldaskálann. Af þessu kom forvitni í kóngsson til að sjá í eldaskálann því hann hugsaði þar væri einhver fásén gersemi inni.
Einn dag þegar risinn var farinn á skóg fer kóngsson og ber sig að ná upp eldaskálanum og kemur hurðinni í hálfa gátt. Sér hann þá að eitthvert kvikindi hristir sig, hleypur fram eftir gólfinu og talar eitthvað. Kóngsson hrekkur nú öfugur frá hurðinni, skellir henni aftur og pissar í buxurnar af hræðslu.
Þegar heldur fór að renna af honum hræðslan ræður hann til aftur því hann hafði gaman af að heyra hvað það segði en það fór á sömu leið fyrir honum sem fyrr.
Honum sárnar nú við sjálfan sig og harkar af sér sem hann kann. Hann ræður þá til í þriðja sinn, lýkur upp skálanum og ber sig að standa við. Sér hann þá að þetta er hundur sem talar enn til hans og segir:
"Kjóstu mig, Hringur kóngsson."
Hann flýtir sér nú burt lafhræddur og hugsar með sér: "Ekki er hérna mikil gersemi," en annars vegar varð honum það minnisstætt sem hann heyrði í skálanum.
Þess er ekki getið hvað lengi hann var þarna hjá risanum en einn dag kemur risinn til hans og segist nú vilja koma honum til lands úr eynni því hann kveðst eiga skammt eftir ólifað. Þakkar hann nú kóngssyni fyrir góða þjónustu og segir að hann skuli kjósa sér einhvern hlut úr eigu sinni því hann skuli eflaust fá það sem hann girnist.
Hringur þakkar honum kærlega og segist ekki eiga hjá honum borgun fyrir viðvik sín þar, þau væru þess ekki verð, en fyrst hann vilji gefa sér nokkuð þá kjósi hann það sem sé í eldaskálanum.
Risanum varð bilt við og mælti: "Þar kaustu hægri hönd af dyrgju minni en þó má ég eigi brigða orð mín."
Síðan fer hann og sækir hundinn. Þegar hundurinn kemur með mikilli ferð og feginleika verður kóngsson hræddur svo að hann átti nóg með að harka af sér að eigi bæri á því. Síðan fer risinn með hann til sjávar. Þar sá hann steinnökkva sem ekki var stærri en svo að hann naumast bar þá báða og hundinn. En er þeir eru komnir til lands kveður risinn Hring vinsamlega og segir að hann megi eiga það sem sé í eynni eftir sinn dag og vitja þess að liðnum hálfum mánuði því þau verði þá dauð. Kóngsson þakkar honum vinsamlega, bæði fyrir þetta og annað gott undanfarið.
Risinn fór nú heimleiðis en kóngsson gekk eitthvað upp frá sjónum. Hann þekkti ekki landið sem hann var staddur á en þorði ekki að tala neitt til hundsins.
Þegar hann er búinn að ganga þegjandi um hríð þá talar hundurinn til hans og segir: "Ekki þykir mér þú vera forvitinn að þú skulir ekki spyrja mig að nafni."
Kóngsson ber sig þá að segja: "Hvað heitirðu?"
Hundurinn segir: "Þér er best að kalla mig Snata-Snata. En nú komum við heim að einu kóngsríki og skaltu biðja kóng veturvistar og að hann ljái þér lítið herbergi fyrir okkur báða."
Kóngssyni fer nú að minnka hræðslan við hundinn. Hann kemur heim að kóngsríki og biður kóng veturvistar. Kóngur tók því vel. Þegar kóngsmenn sáu hundinn tóku þeir að hlæja og gera sig líklega til að erta hann.
Þegar kóngsson sá það sagði hann: "Ég vil ráðleggja ykkur að glettast ekki við hundinn minn, þið kunnið að hafa illt af því."
Þeir sögðu að sér virtist hann jafnlíklegur til hvors tveggja. Hringur fær nú herbergi sér hjá kóngi eins og ráð var fyrir gert á leiðinni. Þegar hann hefur verið með kóngi nokkra daga fer honum að þykja mikið til hans koma og virðir hann öðrum fremur.
Ráðgjafi einn var með kóngi sem Rauður hét. Þegar hann sá að kóngur tók að virða Hring öðrum fremur kom í hann öfund. Einn dag kemur Rauður að máli við kóng og segist ekki vita hvernig því dálæti sé varið sem hann hafi á manni þessum hinum nýkomna, hann hafi þó engar íþróttir sýnt þar frekar en aðrir.
Kóngur segir skammt síðan hann hafi komið.
Rauður segir að hann skuli nú á morgun láta þá fara báða og höggva skóg og vita hvor þeirra verði mikilvirkari.
Þetta heyrði Snati-Snati og sagði Hringi. Ræður hann nú Hringi til að biðja kóng að ljá sér tvær axir svo að hann hefði aðra til taks ef hin kynni að brotna.
Morguninn eftir biður kóngur þá Hring og Rauð að höggva fyrir sig skóg. Þeir taka því vel. Hringur fær tvær axir og svo fer sinn í hvora áttina.
Þegar Hringur er kominn út í skóginn tekur Snati öxina og fer að höggva með kóngssyni. Um kvöldið kom kóngur að líta yfir dagsverk þeirra eins og Rauður hafði lagt fyrir. Var þá viðarköstur Hrings meira en helmingi stærri.
Kóngur mælti þá: "Þetta grunaði mig að Hringur mundi engin mannleysa vera og hef ég aldrei séð þvílíkt dagsverk." Varð nú Hringur í miklu meiri metum hjá kóngi eftir en áður.
Rauður þoldi mjög illa yfir þessu. Einn dag kemur hann til kóngs og segir: "Fyrst Hringur þessi er slíkur íþróttamaður sem hann er þykir mér þú mega biðja hann að drepa blótneytin hérna á skóginum og flá þau sama dag en færa þér hornin og húðirnar að kvöldi."
Kóngur mælti: "Sýnist þér slíkt ekki forsending þar eð þau eru mannskæð og enginn hefur enn komið er þorað hafi að ganga á móti þeim?"
Rauður segir hann hafi þá ekki nema eitt líf að missa. Það sé gaman að reyna karlmennsku hans og kóngur hafi þá heldur orsök til að tigna hann ef hann vinni þau. Kóngur lætur nú til leiðast fyrir þrámælgi Rauðs, þótt honum væri nauðugt, og einn dag biður hann Hring að fara og drepa fyrir sig nautin sem þar séu á skóginum og færa sér af þeim hornin og húðirnar að kvöldi.
Hringur vissi ekki hvað ill nautin voru viðureignar og tekur vel máli kóngs. Fer hann nú þegar af stað. Rauður verður nú glaður við því hann taldi Hring þegar dauðan.
Þegar Hringur kemur í augsýn nautanna koma þau öskrandi á móti honum. Var annað hræðilega stórt en hitt minna. Hringur verður ákaflega hræddur.
Þá segir Snati: "Hvernig líst þér nú á?"
"Illa," segir kóngsson.
Snati segir: "Ekki er um annað að gera fyrir okkur en að ráðast að þeim ef vel á að fara og skaltu ganga móti litla nautinu en ég á móti hinu."
Í sama bili hleypur Snati að stóra bola og er ekki lengi að vinna hann. Kóngsson gengur skjálfandi móti hinum og þegar Snati kemur þá var nautið búið að leggja Hring undir. Var hann nú ekki seinn að hjálpa húsbónda sínum.
Síðan flógu þeir sitt nautið hvor en þegar Snati var búinn að flá stóra nautið var Hringur vart búinn að hálfflá hitt.
Um kvöldið þegar þeir voru búnir að þessu treysti kóngsson sér ekki til að bera hornin öll og báðar húðirnar svo Snati segir honum að fleygja því á hrygg sér heim undir borgarhliðið. Kóngsson þiggur þetta og lætur allt á hundinn nema húðina af minna nautinu. Hana rogast hann sjálfur með. Skilur hann þar allt eftir við borgarhliðið, gengur fyrir kóng og biður hann ganga með sér þangað, afhendir hann honum nú húðirnar og hornin af nautunum.
Kóngur undrast mikillega hetjuskap hans og segir engan hans líka vera munu. Þakkar hann honum innilega fyrir verkið. Eftir þetta setur kóngur hann hið næsta sér. Virtu allir hann mikils og héldu hann hina mestu hetju og jafnvel gat nú ekki Rauður mótmælt því en fór þó alltaf versnandi í þeim ásetningi að ráða hann af dögum.
Eitt sinn kemur honum gott ráð í hug. Gengur hann því fyrir kóng og kveðst þurfa að tala nokkuð við hann. Kóngur spyr hvað það sé. Rauður segir að sér hafi nú dottið í hug gullskikkjan góða, gulltaflið góða og lýsigullið góða sem kóngur hafi misst hérna um árið.
Kóngur biður hann að minnast ekki á það. Rauður spyr hvort kóngi muni ekki lítast sama og sér. Kóngur spyr hvað það sé. Rauður segist sjá að Hringur sé afbragðsmaður og halda að honum vinnist allt. Hafi sér því komið til hugar að ráða kóngi að biðja hann að leita uppi þessa dýrgripi og vera kominn með þá fyrir jólin. Skuli hann lofa honum dóttur sinni í staðinn.
Kóngur segir sér þyki í alla staði ósæmilegt fyrir sig að inna að slíku við Hring þegar hann geti þá ekki vísað honum til þeirra. Rauður lætur sem hann heyri ekki undanfærslu kóngs en telur sífellt um fyrir honum þangað til kóngur lætur að orðum hans.
Þegar mánuður var til jóla þá var það einn dag að kóngur kemur að máli við Hring og segist ætla að biðja hann stórrar bónar. Hringur spyr hver hún sé.
Kóngur segir: "Hún er sú að sækja fyrir mig gullskikkjuna mína góðu, gulltaflið mitt góða og lýsigullið mitt góða sem stolið var frá mér hérna um árið. Ef þú getur fært mér þetta fyrir jólin skal ég gefa þér dóttur mína."
Hringur mælti: "Hvar ætti ég helst að leita?"
Kóngur mælti: "Þú verður að segja þér það sjálfur því ég veit það ekki."
Hringur gengur nú burt frá kóngi og er hljóður í skapi því hann þóttist í vanda staddur en þótti þó á hinn bóginn ágætt að eiga von á kóngsdóttur.
Snati sér nú að húsbóndi hans er ráðafár og segir því við hann að hann skuli ekki leggjast það undir höfuð sem kóngur hafi beðið hann en sínum ráðum skuli hann fylgja því ella muni hann verða í vandræðum staddur.
Kóngsson hlýðir þessu og fer að búast til ferðar. Síðan gengur hann inn fyrir kóng og kveður hann.
Þegar Hringur er genginn út aftur frá kóngi þá segir Snati: "Nú skaltu fyrst fara hér um sveitina í kring og fá þér svo mikið salt sem þú getur."
Kóngsson gerir þetta og fær svo mikið af salti að hann getur ekki borið. Snati segir að hann skuli fleygja pokanum á hrygg sér. Hringur gerir það. Nú var komið að jólum. Hundurinn rennur alltaf á undan kóngssyni þangað til þeir koma undir ein björg.
"Hér verðum við að fara upp," segir Snati.
"Ekki held ég það verði neinn hægðarleikur." segir kóngsson.
"Haltu fast í rófu mína," segir Snati.
Síðan stekkur Snati með Hring í rófunni upp á neðsta stallinn og fær Hringur þá svima. Svo stekkur Snati með hann upp á annan stallinn. Er þá nærri liðið yfir Hring. Í þriðja sinn stekkur hann með hann upp björgin. Er þá alveg liðið yfir Hring. Eftir litla stund raknar hann við.
Ganga þeir stundarkorn eftir sléttum völlum þar til þeir koma að einum helli. Þá var aðfangadagskvöld jóla. Þeir gengu upp á hellinn og fundu þar glugga. Sáu þeir þar inn um fjögur flögð liggja sofandi við eld og stóran grautarpott uppi yfir.
"Nú skaltu sá öllu saltinu ofan í grautarpottinn," segir Snati.
Hringur gerir það og að því búnu vakna flögðin.
Gamla kerlingin er var óttalegust þeirra allra, fer nú fyrst að smakka á grautnum og segir: "Nú er grauturinn saltur, hvernig stendur á því? Ég sem seyddi mjólkina úr fjórum kóngaríkjum í gær og nú er hann þó saltur."
Samt fara nú flögðin að sleikja grautinn og þykir gott en þegar þau eru búin þyrstir kerlingu svo mjög að hún þolir ekki við. Biður hún þá dóttur sína fara út og sækja sér vatn í móðuna sem þar var skammt frá.
"Ég fer ekki," segir hún, "nema þú ljáir mér lýsigullið góða."
"Þó ég drepist færðu það ekki," segir kerling.
"Drepstu þá," segir stelpan.
"Farðu þá, stelpan þín, og taktu það og flýttu þér svo með vatnið," segir kerling.
Stelpan tekur gullið og hleypur út með það. Glampar þá af því um völlinn. Þegar hún kemur að móðunni leggur hún sig ofan að vatninu og fer að drekka. En á meðan hlaupa þeir ofan af glugganum og stinga henni á hausinn ofan í móðuna.
Kerlingu tekur nú að leiðast eftir drykknum og segir að stelpan hafi nú farið að hoppa með lýsigullið um völlinn.
Segir hún þá við son sinn: "Farðu og sæktu mér vatnssopa."
"Ég fer ekki," segir hann, "nema ég fái gullskikkjuna góðu."
"Þó ég drepist þá færðu hana ekki,"segir kerling.
"Drepstu þá," segir hann.
"Farðu þá, strákur, og taktu hana en flýta máttu þér með vatnið," segir kerling.
Hann fer nú í skikkjuna og þegar hann kemur út glampaði af henni svo hann sá til að ganga. Hann kemur nú að móðunni og fer að drekka sem systir hans. Í því hlupu þeir Hringur að honum, færðu hann úr skikkjunni og fleygðu honum í móðuna.
Kerling þolir nú ekki við fyrir þorsta og biður karl sinn að sækja sér að drekka. Segir hún að krakkarnir hafi sjálfsagt farið að hoppa og leika sér úti eins og sig hafi grunað þó hún hefði farið að gegna kvabbinu úr þeim, óhræsunum þessum.
"Ég fer ekki," segir karlinn, "nema þú ljáir mér gulltaflið góða."
"Þó ég drepist þá færðu það aldrei," segir kerling.
"Ég held þú megir þá fara," segir karlinn, "fyrst þú vilt ekki vinna til að gera svona litla bón fyrir mig."
"Taktu það þá, afmánin þín, fyrst þú ert eins og krakkarnir," segir kerling.
Karl fer nú út með gulltaflið, gengur að móðunni og fer að drekka. Með það koma þeir, taka af honum taflið og stinga honum í móðuna en áður en þeir eru komnir upp á hellinn aftur kemur karltötrið afturgenginn úr móðunni. Snati hleypur þegar móti honum og Hringur ræðst á hann líka, þó með hálfum huga, og eftir harða glímu geta þeir unnið hann í annað sinn.
En þegar þeir koma upp á gluggann þá sjá þeir að kerling er farin að akast fram eftir gólfinu.
Þá segir Snati: "Nú er okkur annaðhvort að gera að fara inn og reyna til að vinna á henni því ef hún kemst út þá verður hún óvinnandi því þetta er hið versta flagð sem til er og á hana bítur ekkert járn. Skal nú annar okkar ausa á hana sjóðandi graut úr pottinum en hinn skal klípa hana með glóandi járni."
Þeir fara nú inn.
Þegar kerling sá Snata talar hún til hans og segir: "Þú ert þá kominn, Hringur kóngsson, þú munt hafa séð fyrir bónda mínum og börnum."
Þykist Snati nú vita að kerling muni ætla að fara að leggja á þá og veður að henni með glóandi járnið úr eldinum en hinn eys hvíldarlaust á hana grautnum og með þessum hætti gátu þeir um síðir banað henni.
Síðan brenndu þeir karlinn og hana til ösku. Eftir það könnuðu þeir hellinn og fundu nóg gull og gersemar. Það dýrmætasta af þessu fluttu þeir með sér fram á björgin og gengu þar frá því. Síðan hröðuðu þeir ferð sinni heim til kóngs með dýrgripi hans.
Seint á jólanóttina gengur nú Hringur í höllina og afhendir kóngi dýrgripi hans. Kóngur varð frá sér numinn af gleði og undrast hversu ágætur Hringur er í öllum íþróttum og visku. Hefur hann nú miklu meira við hann en áður, fastnar hann honum nú dóttur sína og skyldi veislan fara fram um hátíðina. Hringur þakkar kóngi kurteislega, bæði fyrir þetta og annað gott. Þegar hann hefur borðað og drukkið í höllinni gengur hann til hvíldar í herbergi sínu. Snati segist nú ætla að biðja hann að lofa sér að liggja í sænginni í nótt en hann skuli aftur vera í bælinu sínu.
Hringur segir það velkomið og að hann eigi meira skilið af sér en því nemi. Snati fer nú upp í sængina. Eftir stutta stundu liðna kemur hann aftur og segir kóngssyni að fara upp í en hann skuli muna sig um að hræra við engu í sænginni.
Nú víkur sögunni til Rauðs. Hann kemur inn í höllina og sýnir kóngi hægri handlegg sinn handarlausan og segir að hann skuli sjá hvaða mannkosti tengdasonur hans tilvonandi hafi til að bera og þetta hafi hann gert sér öldungis saklausum. Kóngur varð afar reiður og segist bráðum skuli komast að því sanna. Ef Hringur hafi höggvið af honum saklausum höndina þá skuli hann hengjast en sé það ekki þá hljóti Rauður að deyja.
Kóngur kallar nú Hring fyrir sig og spyr hvað til þess hafi komið að hann skyldi höggva af Rauð höndina eða hvort Rauður hefði eigi verið saklaus. Snati var búinn að segja Hringi hver valdur mundi vera að því er við bar um nóttina.
Hann biður því kóng að ganga með sér og segist skuli sýna honum nokkur verksummerki. Gengur kóngur nú með Hringi í svefnherbergi hans. Sér hann þá hvar mannshönd með sverði í liggur á sænginni. Hringur segir að þessi hönd hafi komið þar inn um þilið um nóttina og ætlað að leggja sig í gegn í sænginni. Hafi hann þá brugðið vopni sér til varnar. Kóngur segist eigi lá honum það, fyrst svona hefði staðið á, þótt hann hefði leitast við að verja líf sitt og eigi Rauður sökina að sjálfum sér og sé hann dauða verður. Var Rauður síðan hengdur en Hringur drakk brúðkaup sitt til kóngsdóttur.
Fyrstu nóttina sem þau hvíldu saman biður Snati Hring að lofa sér að liggja á fótum þeirra. Hringur veitir honum það. Nú ganga brúðhjónin í eina sæng og Snati fer upp í til fóta þeirra. Um nóttina heyrir Hringur eitthvert ýl og ólæti þar hjá þeim.
Hann kveikir með flýti ljós og sér þá hvar óvenjulegur ljótur hundshamur liggur á þiljunni en fríður kóngsson í sænginni. Hann tekur þegar haminn og brennir hann en dreypir á kóngsson, sem lá í óviti, svo hann raknar við.
Brúðguminn spyr hann að heiti en hann segist heita Hringur og vera kóngsson. Kveðst hann á æskuárum hafa misst móður sína en faðir sinn hefði í hennar stað fengið flagð fyrir drottningu. Hefði hún lagt á sig að hann skyldi verða að hundi og ekki komast úr þeim álögum nema kóngsson sem héti sama nafni og hann lofaði sér að liggja á fótum sínum fyrstu nóttina sem hann svæfi hjá konunni.
Ennfremur sagði hann: "Þegar hún vissi að ég eignaðist þig fyrir nafna þá vildi hún reyna til að ráða þig af dögum svo þú yrðir ekki til að frelsa mig úr álögunum. Hún var hindin sem þú og félagar þínir eltuð forðum, konan sem þú fannst í rjóðrinu hjá tunnunni og flagðið sem við drápum í hellinum núna fyrir skemmstu."
Eftir að veislutíminn var liðinn fara þeir nafnar og fleiri á björgin og flytja allt þaðan heim til borgarinnar. Einnig fóru þeir í eyna og tóku það sem þar var fémætt. Hringur gaf nafna sínum er fór úr álögunum systur sína Ingibjörgu og föðurleifð sína til umráða. En sjálfur var hann með kóngi, tengdaföður sínum, og hafði hálft ríkið meðan kóngur lifði en allt eftir hans dag.
(J.Á.II. -- Handrit Branþrúðar Benónýsdóttur.)
Netútgáfan - febrúar 1998