GALDRAMENN  -  EIRÍKUR  Í  VOGSÓSUM


======================




HESTLÁN



Tveir ferðamenn báðu Eirík einu sinni að ljá sér hesta að ríða yfir ósinn. Hann bað þá taka tvo hesta gráa er stæði á húsabaki og væri knýtt upp í þá snæri, þeim mætti þeir ríða út yfir sand og sleppa þeim þar.

Þeir gjörðu svo, en er þeir leystu út úr þeim voru það ekki annað en tveir hrosshausar.



(Þjóðsagnasafn Jóns Árnasonar)

Netútgáfan - ágúst 2001