HELLTU   ÚT   ÚR   EINUM   KÚT



Einhvern tíma voru tveir kunningjar, annar ungur en hinn aldurhniginn.

Er svo sagt að hann væri ölkær og hafði hinn yngri lofað að bjóða honum í veislu sína. En áður hún yrði haldin dó hinn gamli maður.

Var hann grafinn á hinum sama kirkjustað og hinn kvæntist og var veislan haldin á kirkjustaðnum.

Um nóttina dreymdi brúðgumann að vinur sinn kæmi til sín. Hann kvað:

Helltu út úr einum kút
ofan í gröf mér búna.
Beinin mín í brennivín
bráðlega langar núna.

Hann fór á fætur og hellti úr fjögra potta kút yfir leiði vinar síns og dreymdi hann ekki framar.


(J.Á.I. -- Eftir handriti síra Skúla Gíslasonar.)


Netútgáfan - september 1997