Einar hét maður og bjó á Lambastöðum. Átti hann konu þá er Guðleif hét. Þau höfðu átt saman átján börn er öll dóu í æsku nema sonur þeirra einn.Þau voru ákaflega rík og var Guðleif tápkona hin mesta og skörungur að flestu, þar með ákaflega heilsuhraust. Sem dæmi þar til: Strax er hún hafði börnin alið át hún þorskhelfing, stóreflis köku og fjögra marka ask af nýmjólk.
Einar maður hennar og þeirra einbirnissonur sátu einu sinni á miði einu fyrir framan vörina á Lambastaðabót. Þá var hún stödd uppi í garði og mær ein lítil með henni. Hlóðu þeir sig í sjó og fórust báðir. En er mærin sá þetta fór hún að gráta en Guðleifu varð það að orði er síðan er að orðtæki haft:
"Ég væri brotin væri ég gler og bráðnuð væri ég smér og farðu inn að sjóða, Lauga."
Mið þetta er síðan kallað Einarsmið.
Guðleif bjó búi sínu eftir þetta á Lambastöðum og hallaðist ekki á henni hatturinn þangað til hún dó, hér um bil 1780. Fór þá Snorri Jónsson þangað og tók við búinu öllu í arf eftir kerlingu, því hún var náskyld honum.
Netútgáfan - september 1997