Áður en Grettir kom í Drangey, var hún almenningur en eftir það hann var drepinn (1030 hér um bil), komst hún undir biskupsstólinn á Hólum í Hjaltadal, og höfðu því Hólabiskupar mest umráð yfir eynni og mestar nytjar af fugli og fiskiafla.En ekki var fuglatekjan annmarkalaus í þá daga, því Drangey lítur út eins og sæbrattur klettur úr sjónum á allar hliðar, hvar sem á er litið. Framan af, meðan hér á landi voru fullhugar og ötulir aflamenn, sigu þeir mjög í bergið og sáust lítt fyrir, enda var þá fuglatekjan ólíkt meiri en nú, og urðu tíðum að því ógurlegir mannskaðar og slys; fórust menn úr vöðum og sigum, sprungu á niðurfallinu, lentu á klettum, svo hvert bein mölbrotnaði.
Þess þóttust menn og brátt vísir verða, að jafnt fórust þeir úr berginu, sem góðar festar höfðu, og hinir, sem lakari vaði höfðu, og þótti það ekki einleikið; voru festar þeirra þverkubbaðar sundur, er upp voru dregnar, eins og þær væru annaðhvort höggnar sundur með exi eða skornar með öðru eggjárni, og ekki var trútt um, að mönnum heyrðist ekki högg í berginu, rétt áður en menn fórust úr festum og í því festarnar fóru í sundur.
Lagðist því það orð á, að þeir einir mundu í berginu búa, sem ekki vildu, að landsmenn drægju allan afla úr höndum þeim, og þóttust eiga eyjargagnið eins vel og aðskotadýrin. Við manntjóni þessu vannst engin líkn langan tíma, og var svo komið, að menn voru heldur farnir að heykjast á að fara eins almennt til eyjarinnar og fyrst hafði tíðkast sökum mannskaða þeirra, er þar urðu.
Leið svo þar til Guðmundur góði Arason varð biskup á Hólum. Guðmundur biskup var, sem kunnugt er af sögu hans, nytsemdarmaður mikill með yfirsöngvum og vígslum og vann með því löndum sínum löngum líkn og bót margra meina og réð af margar illar vættir. Guðmundur biskup var góður við snauða menn, og tók hann þá bæði marga heim á staðinn, þegar hann sat þar, og hafði jafnan margt af þeim með sér, er hann reið um land. Af þessu varð stundum vorsníkja hjá honum á staðnum, og þurfti föng til að fá, hvar sem fást máttu. Hann lét menn sína sækja mjög til Drangeyjar á vorum, bæði til fiskifanga og fuglatekju, og fór brátt að bera á því, að vættir þeir, er á eynni voru, gengu eins í berhögg við biskupsmenn sem aðra, og urðu af því mannskaðar stórir.
Biskupi er sagt til, hvern mannskaða hann líði við eyna, og ræður hann það þá af, að hann fer til eyjarinnar með klerkalýð sinn og vígt vatn. í Uppgönguvík er steinstalli nokkur, sem lítur svo út sem hlaðinn væri, og er hann kallaður Gvendaraltari. Þegar biskup steig af skipsfjöl, segja menn, að hann hafi sungið messu og haft þenna stalla fyrir altari, en aðrir segja, að hann hafi aðeins gjört þar bæn sína. Þeim sið halda menn og enn í dag, að enginn fer sá upp á Drangey eða ofan af henni, að hann gjöri ekki bæn sína við stalla þenna. En að því búnu fór hann til og vígði eyna og byrjaði nokkuð fyrir norðan Hæringshlaup útsunnanvert á eynni, þar sem byrgin eru nú niður undan, og hélt vígslunni fram til hægri handar eða andsælis, jafnt uppi sem niðri, og þar meðfram á sjó, sem hann komst ekki undir í fjörunni, og svo einnig með því að síga niður í bergið, og fór þannig umhverfis alla eyna með yfirlestrum og söngvum og vígðu vatni og klerkar hans með honum.
Ekki er þess getið, að hann hafi neins staðar orðið neinna meinvætta var, fyrr en hann var kominn vestur fyrir norðurhorn eyjarinnar að Uppgönguvík aftur. Þar seig hann í bergið sem víðar, og er hann er kominn svo langt niður sem honum þótti hæfilegt, byrjar hann þar sem annars staðar vígslu og yfirlestra. En er hann hefur litla stund lesið, kemur loppa ein stór, bæði grá og loðin, með rauðri ermi á, út úr berginu og heldur á stórri skálm og biturlegri, er hún bregður á festina, sem biskup var í, og tekur hún þegar í sundur tvo þætti festarinnar; en það vildi biskupi til lífs, að skálmin beit ekki á þriðja þáttinn, því hann var þaulvígður.
Í því heyrir biskup rödd úr berginu segja: "Vígðu nú ekki meira, Gvendur biskup; einhvers staðar verða vondir að vera."
Lét biskup þá taka upp festina og sjálfan sig í og sagðist ekki mundi vígja það, sem eftir var bergsins þaðan til Byrgisvíkur, en kvaðst ætla, að allt, sem þá var vígt, mundi hvorki verða sínum mönnum né öðrum að meini þaðan af; og hefur það þótt rætast til þessa.
Kafli sá, sem Guðmundur biskup skildi við óvígðan af berginu, er óvígður enn í dag, og heitir hann síðan Heiðnaberg, og segja menn, að þar sé fuglinn langmestur í öllu Drangeyjarbjargi, og er sú trú enn á, að menn síga trautt í Heiðnaberg.
Það beit snemma illa á landvættir, að Guðmundur biskup mundi verða þeim þungur í skauti. Eftir það Brandur biskup Sæmundsson dó (1201), var tröllkona stödd á Fljótahorni fyrir norðan; hún kallaði til annarrar tröllkonu, sem stóð á Strand'hala, og sagði með feginsrómi svo hátt, að heyrðist um öll héruð, er milli liggja: "Nú er Hólabiskupinn dauður."En tröllkonan á Strand'hala svaraði: "Sá kemur aftur, sem ekki er betri, og það er hann Gvöndur."
Netútgáfan - janúar 1998