Á þeim árum er Sveinn lögmaður Sölvason var á Munkaþverá bjó á Rifkelsstöðum bóndi nokkur Jón að nafni. Hann var fátækur en frómur og ráðvandur. Hann var forsöngvari. Hann átti mörg börn og dóu utan tveir piltar og fjórar stúlkur. Piltarnir hétu Árni og Hannes.Það var einu sinni að Jón bóndi fór með fólk sitt og elstu dæturnar til grasa fyrir sláttinn, en konan var eftir heima með yngstu börnin. Hún skildi þau eftir einsömul heima eitt kveld meðan hún var að mjalta, en þegar konan kom inn var Árni horfinn, annar drengurinn.
Konunni verður hverft við, fer til næsta bæjar og fær sér fólk til að leita, en fannst ei. Næsta morgun eftir fór smalamaður frá Munkaþverá að leita að kvíám er var vant um kveldið og leitaði hann fram á svo nefndar Munkaþverártungur. Þá heyrði hann handan við ána eins og barnsgrát, en hann gat ekki komist yfir um ána fyrir vatnavexti.
Hann fer heim, getur um þetta. Það fara svo nokkrir menn með honum og ganga fram á tungur. Þar finna þeir barnið á einum mel. Barnið var svo ungt að ómögulegt var að það hefði sjálft komist tíunda hluta leiðarinnar og var farið að spyrja það um þetta.
Það sagði að það hefði vaknað og farið fram á rúmstokkinn og ætlað að hitta móður sína sem þá hefði komið, tekið sig í fangið og borið sig út og hefði það þenkt hún mundi bera sig fram á kvíar, en gekk allt annan veg og lengur en það þenkti.
Þá setti hún það niður og ætlaði að skipta um handleggi; þá leit barnið framan í hana og sá að hún var ekki móðir sín, en búnaður hennar var þó eins og móður hans; hún var á grænu pilsi. Hún tók svo barnið aftur á hinn handlegginn og hélt áfram, en drengur barðist um á hæl og hnakka og orgaði þangað til hún sleppti honum niður á melinn er hann fannst á.
Lengi var barnið utan við sig eftir þetta og hræddur að vera einn. Drengur þessi varð skáldmæltur og var kallaður Árni Eyjafjarðarskáld. Hannes bróðir hans fór suður í Hafnarfjörð, varð gamall maður og mun hafa verið lengst á Urriðakoti.
Missögn af ÁrnaFreldrar Árna bjuggu á Rifkelsstöðum og áttu mörg börn. Árni var á sjötta ári er saga þessi gerðist. (Nær þrjátíu ár eru síðan Árni dó.)
Það var einn dag að Ingibjörg systir hans, þá á ellefta ári, átti að reka kýr þar upp á hálsinn. Árni vildi fara með, en móðir hans vildi það ekki; þó varð það úr að þau fóru bæði og ráku kýrnar upp á hálsinn. Kolniðaþoka var fram á dalnum og nokkur kringum þau.
Nú vill Ingibjörg snúa heimleiðis, en hann vill þá ei fara, því hún taki skakka stefnu því þarna sé bærinn, og bendir fram í þokuna. Hún vill koma honum af því, en það er ómögulegt. Nú atlar hún þá að draga, en hann verður æ því verri. Hún hugsar hann geri þetta af þráa, fer á stað heim og hugsar hann komi á eftir. Hún leitar aftur einu sinni og þá stóð hann kyrr. Hún fer svo heim, en ekki kemur Árni.
Þá spyr móður hans Ingibjörgu hvar hann sé og segir hún móður sinni þá satt frá öllu, og verður hún þá hrædd og er nú fengið fólk frá næstu bæjum og varð konan á Stórhamri, Guðrún að nafni, í leitinni. Nú var leitað fram á dal kveldið, nóttina og fram á aftureldingu, en þá var létt upp þokunni, og einnig leitað í Miðárgili og fram í drag þess.
Guðrúnu varð gengið lengra fram og kom að stórum steini og þar lá Árni sofandi undir honum með hendina undir kinninni. Hún vekur hann og hefir Árna með sér til fólksins og spyr það Árna um ferðir hans, og byrjar hann söguna þar sem Ingibjörg systir hans skildi við hann.
Hann segir að honum hafi sýnst bærinn sinn vera þar fram í þokunni er hann klifaði á við Ingibjörgu, hann hafi því gengið þangað og engan bæ fundið, en í staðinn hafi honum sýnst að móðir hans hafa gengið á undan honum og hann svo elt hana svo þar til hún hvarf í þokuna, og gekk hann lengi eftir það.
Þá kom til hans stúlka á gráum hesti og bauð honum að ríða, en hann vildi það ekki. Hún tók hann svo upp á hestinn og reiddi hann æði lengi, en hann orgaði og barðist um þar til hún varð að láta hann niður aftur og hvarf honum.
Nú gekk hann enn þar til hann fann þennan stein og lagðist niður af þreytu og angri og sofnaði þar. -
Nú þegar komið var heim segir Guðrún sá ætti fund sem fyndi, og bauð honum til fósturs og þáðu foreldrar hans það. Hann fór því með henni og ólst með þeim hjónum og var lengi þar síðan og kenndur Árni Eyjafjarðarskáld á Stórhamri í Eyjafirði.
(Þjóðsagnasafn Jóns Árnasonar)
Netútgáfan - apríl 2000