- 1
1 Ljóðaljóðin, eftir Salómon.
(Brúðurin)
- 2 Hann kyssi mig kossi munns síns,
- því að ást þín er betri en vín.
- 3 Yndislegur ilmur er af smyrslum þínum,
- nafn þitt eins og úthellt olía,
- þess vegna elska meyjarnar þig.
- 4 Drag mig á eftir þér! Við skulum flýta okkur!
- Konungurinn leiði mig í herbergi sín!
- Fögnum og gleðjumst yfir þér,
- vegsömum ást þína meir en vín -
- með réttu elska þær þig!
- 5 Svört er ég, og þó yndisleg, þér Jerúsalemdætur,
- sem tjöld Kedars, sem tjalddúkar Salómons.
- 6 Takið ekki til þess, að ég er svartleit,
- því að sólin hefir brennt mig.
- Synir móður minnar reiddust mér,
- þeir settu mig til að gæta víngarða -
- míns eigin víngarðs hefi ég eigi gætt.
- 7 Seg mér, þú sem sál mín elskar,
- hvar heldur þú hjörð þinni til haga, hvar bælir þú um hádegið?
- Því að hví skal ég vera eins og villuráfandi
- hjá hjörðum félaga þinna?
(Brúðguminn)
- 8 Ef þú veist það eigi, þú hin fegursta meðal kvenna,
- þá far þú og rek för hjarðarinnar
- og hald kiðum þínum til haga hjá kofum hirðanna.
- 9 Við hryssurnar fyrir vagni Faraós
- líki ég þér, vina mín.
- 10 Yndislegar eru kinnar þínar fléttum prýddar,
- háls þinn undir perluböndum.
- 11 Gullfestar viljum vér gjöra þér,
- settar silfurhnöppum.
(Brúðurin)
- 12 Meðan konungurinn hvíldi á legubekk sínum,
- lagði ilminn af nardussmyrslum mínum.
- 13 Unnusti minn er sem myrrubelgur,
- sem hvílist milli brjósta mér.
- 14 Kypur-ber er unnusti minn mér,
- úr víngörðunum í Engedí.
(Brúðguminn)
- 15 Hversu fögur ertu, vina mín, hversu fögur ertu!
- Augu þín eru dúfuaugu.
(Brúðurin)
- 16 Hversu fagur ertu, unnusti minn, já indæll.
- Já, iðgræn er hvíla okkar.
- 17 Bjálkarnir í húsi okkar eru sedrusviðir,
- þiljur okkar kýprestré.
- 2
- 1 Ég er narsissa á Saronvöllum,
- lilja í dölunum.
(Brúðguminn)
- 2 Eins og lilja meðal þyrna,
- svo er vina mín meðal meyjanna.
(Brúðurin)
- 3 Eins og apaldur meðal skógartrjánna,
- svo er unnusti minn meðal sveinanna.
- Í skugga hans þrái ég að sitja,
- og ávextir hans eru mér gómsætir.
- 4 Hann leiddi mig í vínhúsið
- og merki hans yfir mér var elska.
- 5 Endurnærið mig með rúsínukökum, hressið mig á eplum,
- því að ég er sjúk af ást.
- 6 Vinstri hönd hans sé undir höfði mér,
- en hin hægri umfaðmi mig!
(Brúðguminn)
- 7 Ég særi yður, Jerúsalemdætur, við skógargeiturnar,
- eða við hindirnar í haganum:
- Vekið ekki, vekið ekki elskuna,
- fyrr en hún sjálf vill.
(Brúðurin)
- 8 Heyr, það er unnusti minn!
- Sjá, þar kemur hann,
- stökkvandi yfir fjöllin,
- hlaupandi yfir hæðirnar.
- 9 Unnusti minn er líkur skógargeit
- eða hindarkálfi.
- Hann stendur þegar bak við húsvegginn,
- horfir inn um gluggann,
- gægist inn um grindurnar.
- 10 Unnusti minn tekur til máls og segir við mig:
- "Stattu upp, vina mín,
- fríða mín, æ kom þú!
- 11 Því sjá, veturinn er liðinn,
- rigningarnar um garð gengnar, - á enda.
- 12 Blómin eru farin að sjást á jörðinni,
- tíminn til að sniðla vínviðinn er kominn,
- og kurr turtildúfunnar heyrist í landi voru.
- 13 Ávextir fíkjutrésins eru þegar farnir að þroskast,
- og ilminn leggur af blómstrandi vínviðnum.
- Stattu upp, vina mín,
- fríða mín, æ kom þú!
- 14 Dúfan mín í klettaskorunum,
- í fylgsni fjallhnúksins,
- lát mig sjá auglit þitt,
- lát mig heyra rödd þína!
- Því að rödd þín er sæt
- og auglit þitt yndislegt.
- 15 Náið fyrir oss refunum, yrðlingunum,
- sem skemma víngarðana,
- því að víngarðar vorir standa í blóma."
- 16 Unnusti minn er minn, og ég er hans,
- hans, sem heldur hjörð sinni til haga meðal liljanna.
- 17 Þangað til dagurinn verður svalur
- og skuggarnir flýja,
- snú þú aftur, unnusti minn,
- og líkst þú skógargeitinni
- eða hindarkálfi á anganfjöllum.
- 3
- 1 Í hvílu minni um nótt leitaði ég hans sem sál mín elskar,
- ég leitaði hans, en fann hann ekki.
- 2 Ég skal fara á fætur og ganga um borgina,
- um strætin og torgin.
- Ég skal leita hans, sem sál mín elskar!
- Ég leitaði hans, en fann hann ekki.
- 3 Verðirnir, sem ganga um borgina, hittu mig.
- "Hafið þér séð þann sem sál mín elskar?"
- 4 Óðara en ég var frá þeim gengin,
- fann ég þann sem sál mín elskar.
- Ég þreif í hann og sleppi honum ekki,
- fyrr en ég hefi leitt hann í hús móður minnar
- og í herbergi hennar er mig ól.
- 5 Ég særi yður, Jerúsalemdætur, við skógargeiturnar
- eða við hindirnar í haganum:
- Vekið ekki, vekið ekki elskuna,
- fyrr en hún sjálf vill.
- 6 Hvað er það, sem kemur úr heiðinni
- eins og reykjarsúlur,
- angandi af myrru og reykelsi,
- af alls konar kaupmannskryddi?
- 7 Það er burðarrekkja Salómons,
- sextíu kappar kringum hana
- af köppum Ísraels.
- 8 Allir með sverð í hendi,
- vanir hernaði,
- hver og einn með sverð við lend
- vegna næturóttans.
- 9 Burðarstól lét Salómon konungur gjöra sér
- úr viði frá Líbanon.
- 10 Stólpa hans lét hann gjöra af silfri,
- bakið úr gulli,
- sætið úr purpuradúk,
- lagt hægindum að innan
- af elsku Jerúsalemdætra.
- 11 Gangið út, Síonardætur, og horfið á
- Salómon konung,
- á sveiginn sem móðir hans hefir krýnt hann
- á brúðkaupsdegi hans
- og á gleðidegi hjarta hans.
(Brúðguminn)
- 4
- 1 Já, fögur ertu, vina mín,
- já, fögur ertu.
- Augu þín eru dúfuaugu
- fyrir innan skýluraufina.
- Hár þitt er eins og geitahjörð,
- sem rennur niður Gíleaðfjall.
- 2 Tennur þínar eru eins og hópur af nýklipptum ám,
- sem koma af sundi,
- sem allar eru tvílembdar
- og engin lamblaus meðal þeirra.
- 3 Varir þínar eru eins og skarlatsband
- og munnur þinn yndislegur.
- Vangi þinn er eins og kinn á granatepli
- út um skýluraufina.
- 4 Háls þinn er eins og Davíðsturn,
- reistur fyrir hernumin vopn.
- Þúsund skildir hanga á honum,
- allar törgur kappanna.
- 5 Brjóst þín eru eins og tveir rádýrskálfar, skóggeitar-tvíburar,
- sem eru á beit meðal liljanna.
- 6 Þar til kular af degi
- og skuggarnir flýja,
- vil ég ganga til myrruhólsins
- og til reykelsishæðarinnar.
- 7 Öll ertu fögur, vina mín,
- og á þér eru engin lýti.
- 8 Með mér frá Líbanon, brúður,
- með mér skaltu koma frá Líbanon!
- Lít niður frá Amanatindi,
- frá Senír- og Hermontindi,
- frá bælum ljónanna, frá fjöllum pardusdýranna.
- 9 Þú hefir rænt hjarta mínu, systir mín, brúður,
- þú hefir rænt hjarta mínu með einu augnatilliti þínu,
- með einni festi af hálsskarti þínu.
- 10 Hversu ljúf er ást þín, systir mín, brúður,
- hversu miklu dýrmætari er ást þín en vín
- og angan smyrsla þinna heldur en öll ilmföng.
- 11 Hunangsseimur drýpur af vörum þínum, brúður,
- hunang og mjólk er undir tungu þinni,
- og ilmur klæða þinna er eins og Líbanonsilmur.
- 12 Lokaður garður er systir mín, brúður,
- lokuð lind, innsigluð uppspretta.
- 13 Frjóangar þínir eru lystirunnur af granateplatrjám með dýrum ávöxtum,
- kypurblóm og nardusgrös,
- 14 nardus og krókus, kalamus og kanel,
- ásamt alls konar reykelsisrunnum,
- myrra og alóe, ásamt alls konar ágætis ilmföngum.
- 15 Þú ert garðuppspretta, brunnur lifandi vatns
- og bunulækur ofan af Líbanon.
(Brúðurin)
- 16 Vakna þú, norðanvindur, og kom þú, sunnanblær,
- blás þú um garð minn, svo að ilmur hans dreifist.
- Unnusti minn komi í garð sinn
- og neyti hinna dýru ávaxta hans.
(Brúðguminn)
- 5
- 1 Ég kom í garð minn, systir mín, brúður,
- ég tíndi myrru mína og balsam.
- Ég át hunangsköku mína og hunangsseim,
- ég drakk vín mitt og mjólk.
(Kór)
- Etið, vinir, drekkið,
- gjörist ástdrukknir.
(Brúðurin)
- 2 Ég sef, en hjarta mitt vakir,
- heyr, unnusti minn drepur á dyr!
- "Ljúk upp fyrir mér, systir mín, vina mín,
- dúfan mín, ljúfan mín!
- Því að höfuð mitt er alvott af dögg,
- hárlokkar mínir af dropum næturinnar."
- 3 "Ég er komin úr kyrtlinum,
- hvernig ætti ég að fara í hann aftur?
- Ég hefi laugað fæturna,
- hvernig ætti ég að óhreinka þá aftur?"
- 4 Unnusti minn rétti höndina inn um gluggann,
- og hjarta mitt svall honum á móti.
- 5 Ég reis á fætur til þess að ljúka upp fyrir unnusta mínum,
- og myrra draup af höndum mínum
- og fljótandi myrra af fingrum mínum
- á handfang slárinnar.
- 6 Ég lauk upp fyrir unnusta mínum,
- en unnusti minn var farinn, horfinn.
- Ég stóð á öndinni meðan hann talaði.
- Ég leitaði hans, en fann hann ekki,
- ég kallaði á hann, en hann svaraði ekki.
- 7 Verðirnir sem ganga um borgina, hittu mig,
- þeir slógu mig, þeir særðu mig,
- verðir múranna sviptu slæðunum af mér.
- 8 Ég særi yður, Jerúsalemdætur:
- Þegar þér finnið unnusta minn,
- hvað ætlið þér þá að segja honum?
- Að ég sé sjúk af ást!
(Kór)
- 9 Hvað hefir unnusti þinn fram yfir aðra unnusta,
- þú hin fegursta meðal kvenna?
- Hvað hefir unnusti þinn fram yfir aðra unnusta,
- úr því þú særir oss svo?
(Brúðurin)
- 10 Unnusti minn er mjallahvítur og rauður,
- hann ber af tíu þúsundum.
- 11 Höfuð hans er skíragull,
- hinir hrynjandi hárlokkar hans hrafnsvartir,
- 12 augu hans eins og dúfur við vatnslæki,
- baðandi sig í mjólk, sett í umgjörð,
- 13 kinnar hans eins og balsambeð,
- er í vaxa kryddjurtir.
- Varir hans eru liljur,
- drjúpandi af fljótandi myrru.
- 14 Hendur hans eru gullkefli,
- sett krýsolítsteinum,
- kviður hans listaverk af fílabeini,
- lagt safírum.
- 15 Fótleggir hans eru marmarasúlur,
- sem hvíla á undirstöðum úr skíragulli,
- ásýndar er hann sem Líbanon,
- frábær eins og sedrustré.
- 16 Gómur hans er sætleikur,
- og allur er hann yndislegur.
- Þetta er unnusti minn og þetta er vinur minn,
- þér Jerúsalemdætur.
(Kór)
- 6
- 1 Hvert er unnusti þinn genginn,
- þú hin fegursta meðal kvenna?
- Hvert hefir unnusti þinn farið,
- að vér megum leita hans með þér?
(Brúðurin)
- 2 Unnusti minn gekk ofan í garð sinn,
- að balsambeðunum,
- til þess að skemmta sér í görðunum
- og til að tína liljur.
- 3 Ég heyri unnusta mínum, og unnusti minn heyrir mér,
- hann sem skemmtir sér meðal liljanna.
(Brúðguminn)
- 4 Fögur ertu, vina mín, eins og Tirsa,
- yndisleg eins og Jerúsalem,
- ægileg sem herflokkar.
- 5 Snú frá mér augum þínum,
- því að þau hræða mig.
- Hár þitt er eins og geitahjörð,
- sem rennur niður Gíleaðfjall.
- 6 Tennur þínar eru eins og hópur af ám,
- sem koma af sundi,
- sem allar eru tvílembdar
- og engin lamblaus meðal þeirra.
- 7 Vangi þinn er eins og kinn á granatepli
- út um skýluraufina.
- 8 Sextíu eru drottningarnar og áttatíu hjákonurnar
- og óteljandi ungfrúr.
- 9 En ein er dúfan mín, ljúfan mín,
- einkabarn móður sinnar,
- augasteinn þeirrar er ól hana.
- Meyjarnar sáu hana og sögðu hana sæla,
- og drottningar og hjákonur víðfrægðu hana.
- 10 Hver er sú sem horfir niður eins og morgunroðinn,
- fögur sem máninn, hrein sem sólin,
- ægileg sem herflokkar?
- 11 Ég hafði gengið ofan í hnotgarðinn
- til þess að skoða gróðurinn í dalnum,
- til þess að skoða, hvort vínviðurinn væri farinn að bruma,
- hvort granateplatrén væru farin að blómgast.
- 12 Áður en ég vissi af, hafði löngun mín leitt mig
- að vögnum manna höfðingja nokkurs.
(Kór)
- 13 Snú þér við, snú þér við, Súlamít,
- snú þér við, snú þér við, svo að vér fáum séð þig!
(Brúðguminn)
- Hvað viljið þér sjá á Súlamít?
- Er það dansinn í tvíflokknum?
- 7
- 1 Hversu fagrir eru fætur þínir í ilskónum,
- þú höfðingjadóttir!
- Ávali mjaðma þinna er eins og hálsmen,
- handaverk listasmiðs,
- 2 skaut þitt kringlótt skál,
- er eigi má skorta vínblönduna,
- kviður þinn hveitibingur,
- kringsettur liljum,
- 3 brjóst þín eins og tveir rádýrskálfar,
- skóggeitar-tvíburar.
- 4 Háls þinn er eins og fílabeinsturn,
- augu þín sem tjarnir hjá Hesbon,
- við hlið Batrabbím,
- nef þitt eins og Líbanonsturninn,
- sem veit að Damaskus.
- 5 Höfuðið á þér er eins og Karmel
- og höfuðhár þitt sem purpuri,
- konungurinn er fjötraður af lokkunum.
- 6 Hversu fögur ertu og hversu yndisleg ertu,
- ástin mín, í yndisnautnunum.
- 7 Vöxtur þinn líkist pálmavið
- og brjóst þín vínberjum.
- 8 Ég hugsa: Ég verð að fara upp í pálmann,
- grípa í greinar hans.
- Ó, að brjóst þín mættu líkjast berjum vínviðarins
- og ilmurinn úr nefi þínu eplum,
- 9 og gómur þinn góðu víni,
(Brúðurin)
- sem unnusta mínum rennur liðugt niður,
- líðandi yfir varir og tennur.
- 10 Ég heyri unnusta mínum,
- og til mín er löngun hans.
- 11 Kom, unnusti minn, við skulum fara út á víðan vang,
- hafast við meðal kypurblómanna.
- 12 Við skulum fara snemma upp í víngarðana,
- sjá, hvort vínviðurinn er farinn að bruma,
- hvort blómin eru farin að ljúkast upp,
- hvort granateplatrén eru farin að blómgast.
- Þar vil ég gefa þér ást mína.
- 13 Ástareplin anga
- og yfir dyrum okkar eru alls konar dýrir ávextir,
- nýir og gamlir, unnusti minn,
- ég hefi geymt þér þá.
- 8
- 1 Ó, að þú værir mér sem bróðir, er sogið hefði brjóst móður minnar.
- Hitti ég þig úti, mundi ég kyssa þig,
- og menn mundu þó ekki fyrirlíta mig.
- 2 Ég mundi leiða þig, fara með þig í hús móður minnar,
- í herbergi hennar er mig ól.
- Ég mundi gefa þér kryddvín að drekka,
- kjarneplalög minn.
- 3 Vinstri hönd hans sé undir höfði mér,
- en hin hægri umfaðmi mig.
(Brúðguminn)
- 4 Ég særi yður, Jerúsalemdætur:
- Ó, vekið ekki, vekið ekki elskuna,
- fyrr en hún sjálf vill.
(Kór)
- 5 Hver er sú, sem kemur þarna úr heiðinni
- og styðst við unnusta sinn?
(Brúðurin)
- Undir eplatrénu vakti ég þig,
- þar fæddi móðir þín þig með kvöl,
- þar fæddi með kvöl sú er þig ól.
- 6 Legg mig sem innsiglishring við hjarta þér,
- sem innsiglishring við armlegg þinn.
- Því að elskan er sterk eins og dauðinn,
- ástríðan hörð eins og Hel.
- Blossar hennar eru eldblossar,
- logi hennar brennandi.
- 7 Mikið vatn getur ekki slökkt elskuna
- og árstraumar ekki drekkt henni.
- Þótt einhver vildi gefa öll auðæfi húss síns fyrir elskuna,
- þá mundu menn ekki gjöra annað en fyrirlíta hann.
(Kór)
- 8 Við eigum unga systur,
- sem enn er brjóstalaus.
- Hvað eigum við að gjöra við systur okkar,
- þá er einhver kemur að biðja hennar?
- 9 Ef hún er múrveggur,
- þá reisum við á honum silfurtind,
- en ef hún er hurð,
- þá lokum við henni með sedrusbjálka.
(Brúðurin)
- 10 Ég er múrveggur,
- og brjóst mín eru eins og turnar.
- Ég varð í augum hans
- eins og sú er fann hamingjuna.
(Brúðguminn)
- 11 Salómon átti víngarð í Baal Hamón.
- Hann fékk víngarðinn varðmönnum,
- hver átti að greiða þúsund sikla silfurs fyrir sinn hlut ávaxtanna.
- 12 Víngarðurinn minn, sem ég á, er fyrir mig.
- Eig þú þúsundin, Salómon,
- og þeir sem gæta ávaxtar hans, tvö hundruð.
- 13 Þú sem býr í görðunum,
- vinir hlusta á rödd þína,
- lát mig heyra hana.
(Brúðurin)
- 14 Flý þú burt, unnusti minn,
- og líkst þú skógargeitinni
- eða hindarkálfi á balsamfjöllum.
Netútgáfan og Hið Íslenska Biblíufélag - ágúst 1997