Kveðja1
1Páll, kallaður að Guðs vilja til að vera postuli Jesú Krists, og Sósþenes, bróðir vor, heilsa2söfnuði Guðs í Korintu, þeim sem helgaðir eru í Kristi Jesú, heilagir að köllun til, ásamt öllum þeim, sem alls staðar ákalla nafn Drottins vors Jesú Krists, sem er þeirra Drottinn og vor.
3Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.
4Ávallt þakka ég Guði mínum yðar vegna fyrir þá náð, sem hann hefur gefið yður í Kristi Jesú. 5Í honum eruð þér auðgaðir orðnir í öllu, í hvers konar ræðu og hvers konar þekkingu. 6Vitnisburðurinn um Krist er líka staðfestur orðinn á meðal yðar, 7svo að yður brestur ekki neina náðargjöf meðan þér væntið opinberunar Drottins vors Jesú Krists. 8Hann mun og gjöra yður staðfasta allt til enda, óásakanlega á degi Drottins vors Jesú Krists. 9Trúr er Guð, sem yður hefur kallað til samfélags sonar síns Jesú Krists, Drottins vors.
Allir samhuga10En ég áminni yður, bræður, í nafni Drottins vors Jesú Krists, að þér séuð allir samhuga og ekki séu flokkadrættir á meðal yðar, heldur að þér séuð fullkomlega sameinaðir í sama hugarfari og í sömu skoðun. 11Því að mér hefur verið tjáð um yður, bræður mínir, af heimilismönnum Klóe, að þrætur eigi sér stað á meðal yðar. 12Ég á við þetta, að sumir yðar segja: "Ég er Páls," og aðrir: "Ég er Apollóss," eða: "Ég er Kefasar," eða: "Ég er Krists." 13Er þá Kristi skipt í sundur? Mun Páll hafa verið krossfestur fyrir yður? Eða eruð þér skírðir til nafns Páls? 14Ég þakka Guði fyrir, að ég hef engan yðar skírt nema Krispus og Gajus, 15til þess að enginn skuli segja, að þér séuð skírðir til nafns míns. 16Jú, ég skírði líka Stefanas og heimamenn hans. Annars veit ég ekki til, að ég hafi skírt neinn annan. 17Ekki sendi Kristur mig til að skíra, heldur til að boða fagnaðarerindið, - og ekki með orðspeki, til þess að kross Krists missti ekki gildi sitt.
Kristur, kraftur Guðs og speki18Því að orð krossins er heimska þeim er glatast, en oss, sem hólpnir verðum, er það kraftur Guðs. 19Ritað er:
- Ég mun eyða speki spekinganna,
- og hyggindi hyggindamannanna mun ég að engu gjöra.
20Hvar er vitringur? Hvar fræðimaður? Hvar orðkappi þessarar aldar? Hefur Guð ekki gjört speki heimsins að heimsku?
21Því þar eð heimurinn með speki sinni þekkti ekki Guð í speki hans, þóknaðist Guði að frelsa þá, er trúa, með heimsku prédikunarinnar. 22Gyðingar heimta tákn, og Grikkir leita að speki, 23en vér prédikum Krist krossfestan, Gyðingum hneyksli og heiðingjum heimsku, 24en hinum kölluðu, bæði Gyðingum og Grikkjum, Krist, kraft Guðs og speki Guðs. 25Því að heimska Guðs er mönnum vitrari og veikleiki Guðs mönnum sterkari.
26Bræður, hyggið að köllun yðar: Þér voruð ekki margir vitrir að manna dómi, ekki margir máttugir, ekki margir stórættaðir. 27En Guð hefur útvalið það, sem heimurinn telur heimsku, til að gjöra hinum vitru kinnroða, og Guð hefur útvalið það, sem heimurinn telur veikleika til að gjöra hinu volduga kinnroða. 28Og hið ógöfuga í heiminum og hið fyrirlitna hefur Guð útvalið, það sem ekkert er, til þess að gjöra að engu það, sem eitthvað er, 29til þess að enginn maður skuli hrósa sér fyrir Guði. 30Honum er það að þakka að þér eruð í samfélagi við Krist Jesú. Hann er orðinn oss vísdómur frá Guði, bæði réttlæti, helgun og endurlausn. 31Eins og ritað er: "Sá, sem hrósar sér, hrósi sér í Drottni."
Leyndardómur Guðs opinber2
1Er ég kom til yðar, bræður, og boðaði yður leyndardóm Guðs, kom ég ekki með frábærri mælskusnilld eða speki. 2Ég ásetti mér að vita ekkert á meðal yðar, nema Jesú Krist og hann krossfestan. 3Og ég dvaldist á meðal yðar í veikleika, ótta og mikilli angist. 4Orðræða mín og prédikun studdist ekki við sannfærandi vísdómsorð, heldur við sönnun anda og kraftar, 5til þess að trú yðar væri eigi byggð á vísdómi manna, heldur á krafti Guðs.6Speki tölum vér meðal hinna fullkomnu, þó ekki speki þessarar aldar eða höfðingja þessarar aldar, sem að engu verða, 7heldur tölum vér leynda speki Guðs, sem hulin hefur verið, en Guð hefur frá eilífð fyrirhugað oss til dýrðar. 8Enginn af höfðingjum þessarar aldar þekkti hana, því að ef þeir hefðu þekkt hana, hefðu þeir ekki krossfest Drottin dýrðarinnar. 9En það er eins og ritað er:
- Það sem auga sá ekki og eyra heyrði ekki
- og ekki kom upp í hjarta nokkurs manns,
- allt það sem Guð fyrirbjó þeim, er elska hann.
10En oss hefur Guð opinberað hana fyrir andann, því að andinn rannsakar allt, jafnvel djúp Guðs. 11Hver meðal manna veit hvað mannsins er, nema andi mannsins, sem í honum er? Þannig hefur heldur enginn komist að raun um, hvað Guðs er, nema Guðs andi. 12En vér höfum ekki hlotið anda heimsins, heldur andann, sem er frá Guði, til þess að vér skulum vita, hvað oss er af Guði gefið. 13Enda tölum vér það ekki með orðum, sem mannlegur vísdómur kennir, heldur með orðum, sem andinn kennir, og útlistum andleg efni á andlegan hátt. 14Maðurinn án anda veitir ekki viðtöku því, sem Guðs anda er, því að honum er það heimska og hann getur ekki skilið það, af því að það dæmist andlega. 15En hinn andlegi dæmir um allt, en um hann sjálfan verður ekki dæmt af neinum. 16Því að
- hver hefur þekkt huga Drottins,
- að hann geti frætt hann?
En vér höfum huga Krists.
Grundvöllurinn er Kristur3
1Ég gat ekki, bræður, talað við yður eins og við andlega menn, heldur eins og við holdlega, eins og við ómálga í Kristi. 2Mjólk gaf ég yður að drekka, ekki fasta fæðu, því að enn þolduð þér það ekki. Og þér þolið það jafnvel ekki enn, 3því að enn þá eruð þér holdlegir menn. Fyrst metingur og þráttan er á meðal yðar, eruð þér þá eigi holdlegir og hegðið yður á manna hátt? 4Þegar einn segir: "Ég er Páls," en annar: "Ég er Apollóss," eruð þér þá ekki eins og hverjir aðrir menn?5Hvað er þá Apollós? Já, hvað er þá Páll? Þjónar, sem hafa leitt yður til trúar, og það eins og Drottinn hefur gefið hvorum um sig. 6Ég gróðursetti, Apollós vökvaði, en Guð gaf vöxtinn. 7Þannig er þá hvorki sá neitt, er gróðursetur, né sá, er vökvar, heldur Guð, sem vöxtinn gefur. 8Sá, sem gróðursetur, og sá, sem vökvar, eru eitt. En sérhver mun fá laun eftir sínu erfiði. 9Því að samverkamenn Guðs erum vér, og þér eruð Guðs akurlendi, Guðs hús.
10Eftir þeirri náð, sem Guð hefur veitt mér, hef ég eins og vitur húsameistari lagt grundvöll, er annar byggir ofan á. En sérhver athugi, hvernig hann byggir. 11Annan grundvöll getur enginn lagt en þann, sem lagður er, sem er Jesús Kristur. 12En ef einhver byggir ofan á grundvöllinn gull, silfur, dýra steina, tré, hey eða hálm, 13þá mun verk hvers um sig verða augljóst. Dagurinn mun leiða það í ljós, af því að hann opinberast með eldi og eldurinn mun prófa hvílíkt verk hvers og eins er. 14Ef nú verk einhvers fær staðist, það er hann byggði ofan á, mun hann taka laun. 15Ef verk einhvers brennur upp, mun hann bíða tjón. Sjálfur mun hann frelsaður verða, en þó eins og úr eldi.
16Vitið þér eigi, að þér eruð musteri Guðs og að andi Guðs býr í yður? 17Ef nokkur eyðir musteri Guðs, mun Guð eyða honum, því að musteri Guðs er heilagt, og þér eruð það musteri.
18Enginn dragi sjálfan sig á tálar. Ef nokkur þykist vitur yðar á meðal í þessum heimi, verði hann fyrst heimskur til þess að hann verði vitur. 19Því að speki þessa heims er heimska hjá Guði. Ritað er:
- Hann er sá, sem grípur hina vitru í slægð þeirra.
20Og aftur:
- Drottinn þekkir hugsanir vitringanna,
- að þær eru hégómlegar.
21Fyrir því stæri enginn sig af mönnum. Því að allt er yðar, 22hvort heldur er Páll, Apollós eða Kefas, heimurinn, líf eða dauði, hið yfirstandandi eða hið komandi, allt er yðar. 23En þér eruð Krists og Kristur Guðs.
Ráðsmenn og þjónar4
1Þannig líti menn á oss svo sem þjóna Krists og ráðsmenn yfir leyndardómum Guðs. 2Nú er þess krafist af ráðsmönnum, að sérhver reynist trúr. 3En mér er það fyrir minnstu að verða dæmdur af yður eða af mannlegu dómþingi. Ég dæmi mig ekki einu sinni sjálfur. 4Ég er mér ekki neins ills meðvitandi, en með því er ég þó ekki sýknaður. Drottinn er sá sem dæmir mig. 5Dæmið því ekki fyrir tímann, áður en Drottinn kemur. Hann mun leiða það í ljós, sem í myrkrinu er hulið, og opinbera ráð hjartnanna. Og þá mun hver um sig hljóta þann lofstír af Guði, sem hann á skilið.6En þetta hef ég yðar vegna, bræður, heimfært til sjálfs mín og Apollóss, til þess að þér af okkar dæmi mættuð læra regluna: "Farið ekki lengra en ritað er," - og til þess að enginn yðar hroki sér upp einum í vil, öðrum til niðrunar. 7Því að hver gefur þér yfirburði? Og hvað hefur þú, sem þú hefur ekki þegið? En hafir þú nú þegið það, hví stærir þú þig þá eins og þú hefðir ekki fengið það að gjöf? 8Þér eruð þegar orðnir mettir, þér eruð þegar orðnir auðugir, án vor eruð þér orðnir konungar. Og ég vildi óska, að þér væruð orðnir konungar, til þess að einnig vér mættum vera konungar með yður! 9Mér virðist Guð hafa sett oss postulana sísta allra, eins og dauðadæmda á leiksviði, frammi fyrir öllum heiminum, bæði englum og mönnum. 10Vér erum heimskir sökum Krists, en þér vitrir fyrir samfélag yðar við Krist! Vér erum veikir, en þér sterkir, þér eruð í hávegum hafðir, en vér óvirtir. 11Allt til þessarar stundar þolum vér hungur, þorsta og klæðleysi, oss er misþyrmt, vér höfum engan samastað, 12og vér stöndum í erfiði og verðum að vinna með eigin höndum. 13Hrakyrtir blessum vér, ofsóttir umberum vér, lastaðir áminnum vér. Vér erum orðnir eins og sorp heimsins, afhrak allra allt til þessa.
14Ekki rita ég þetta til þess að gjöra yður kinnroða, heldur til að áminna yður eins og elskuleg börn mín. 15Enda þótt þér hefðuð tíu þúsund fræðara í Kristi, þá hafið þér þó eigi marga feður. Ég hef í Kristi Jesú fætt yður með því að flytja yður fagnaðarerindið. 16Ég bið yður: Verið eftirbreytendur mínir.
17Þess vegna sendi ég Tímóteus til yðar, sem er elskað og trútt barn mitt í Drottni. Hann mun minna yður á vegu mína í Kristi, eins og ég kenni alls staðar í hverjum söfnuði. 18En nokkrir hafa gjörst hrokafullir, rétt eins og ég ætlaði ekki að koma til yðar, 19en ég mun brátt koma til yðar, ef Drottinn vill, og mun ég þá kynna mér, ekki orð hinna stærilátu, heldur kraft þeirra. 20Því að Guðs ríki er ekki fólgið í orðum, heldur í krafti. 21Hvað viljið þér? Á ég að koma til yðar með hirtingarvönd eða í kærleika og hógværðar anda?
Hreinsun af gömlu súrdeigi5
1Það er mér sagt að saurlifnaður eigi sér stað á meðal yðar, og það slíkur saurlifnaður, sem jafnvel gerist ekki meðal heiðingja, að maður heldur við konu föður síns. 2Og svo eruð þér stærilátir, í stað þess að hryggjast og gjöra gangskör að því, að manninum, sem þetta hefur drýgt, yrði útrýmt úr félagi yðar! 3Ég fyrir mitt leyti, fjarlægur að líkamanum til, en nálægur að andanum, hef þegar, eins og ég væri nálægur, kveðið upp dóm í nafni Drottins vors Jesú yfir manni þeim, sem þetta hefur drýgt: 4Þegar þér og minn andi eruð saman komnir með krafti Drottins vors Jesú, 5skal selja slíkan mann Satan á vald til tortímingar holdinu, til þess að andinn megi hólpinn verða á degi Drottins Jesú.6Ekki hafið þér ástæðu til að stæra yður! Vitið þér ekki, að lítið súrdeig sýrir allt deigið? 7Hreinsið burt gamla súrdeigið, til þess að þér séuð nýtt deig, enda eruð þér ósýrðir. Því að páskalambi voru er slátrað, sem er Kristur. 8Höldum því hátíð, ekki með gömlu súrdeigi né með súrdeigi illsku og vonsku, heldur með ósýrðum brauðum hreinleikans og sannleikans.
9Ég ritaði yður í bréfinu, að þér skylduð ekki umgangast saurlífismenn. 10Átti ég þar ekki við saurlífismenn þessa heims yfirleitt, ásælna og ræningja eða hjáguðadýrkendur, því að þá hefðuð þér orðið að fara út úr heiminum. 11En nú rita ég yður, að þér skuluð ekki umgangast nokkurn þann, er nefnir sig bróður, en er saurlífismaður eða ásælinn, skurðgoðadýrkari eða lastmáll, ofdrykkjumaður eða ræningi. Þér skuluð jafnvel ekki sitja að borði með slíkum manni. 12Hvað skyldi ég vera að dæma þá, sem fyrir utan eru? Dæmið þér ekki þá, sem fyrir innan eru? 13Og mun ekki Guð dæma þá, sem fyrir utan eru? "Útrýmið hinum vonda úr yðar hópi."
Málaferli milli bræðra6
1Getur nokkur yðar, sem hefur sök móti öðrum, fengið af sér að leggja málið undir dóm heiðinna manna, en ekki hinna heilögu? 2Eða vitið þér ekki, að hinir heilögu eiga að dæma heiminn? Og ef þér eigið að dæma heiminn, eruð þér þá óverðugir að dæma í hinum minnstu málum? 3Vitið þér eigi, að vér eigum að dæma engla? Hvað þá heldur tímanleg efni! 4Þegar þér eigið að dæma um tímanleg efni, þá kveðjið þér að dómurum menn, sem að engu eru hafðir í söfnuðinum. 5Ég segi það yður til blygðunar. Er þá enginn vitur til á meðal yðar, sem skorið geti úr málum milli bræðra? 6Í stað þess á bróðir í máli við bróður og það fyrir vantrúuðum!7Annars er það nú yfirleitt galli á yður, að þér eigið í málaferlum hver við annan. Hví líðið þér ekki heldur órétt? Hví látið þér ekki heldur hafa af yður? 8Í stað þess hafið þér rangsleitni í frammi og hafið af öðrum og það af bræðrum! 9Vitið þér ekki, að ranglátir munu ekki Guðs ríki erfa? Villist ekki! Hvorki munu saurlífismenn né skurðgoðadýrkendur, hórkarlar né kynvillingar, 10þjófar né ásælnir, drykkjumenn, lastmálir né ræningjar Guðs ríki erfa. 11Og þetta voruð þér, sumir yðar. En þér létuð laugast, þér eruð helgaðir, þér eruð réttlættir fyrir nafn Drottins Jesú Krists og fyrir anda vors Guðs.
Líkaminn musteri heilags anda12Allt er mér leyfilegt, en ekki er allt gagnlegt. Allt er mér leyfilegt, en ég má ekki láta neitt fá vald yfir mér. 13Maturinn er fyrir magann og maginn fyrir matinn, en Guð mun hvort tveggja að engu gjöra. En líkaminn er ekki fyrir saurlífi, heldur fyrir Drottin og Drottinn fyrir líkamann. 14Guð hefur uppvakið Drottin og mun uppvekja oss fyrir kraft sinn. 15Vitið þér ekki, að líkamir yðar eru limir Krists? Á ég þá að taka limi Krists og gjöra þá að skækjulimum? Fjarri fer því. 16Vitið þér ekki, að sá er samlagar sig skækjunni verður ásamt henni einn líkami? Því að sagt er: "Þau tvö munu verða eitt hold." 17En sá er samlagar sig Drottni er einn andi ásamt honum.
18Flýið saurlifnaðinn! Sérhver önnur synd, sem maðurinn drýgir, er fyrir utan líkama hans. En saurlífismaðurinn syndgar á móti eigin líkama. 19Vitið þér ekki, að líkami yðar er musteri heilags anda, sem í yður er og þér hafið frá Guði? Og ekki eruð þér yðar eigin. 20Þér eruð verði keyptir. Vegsamið því Guð með líkama yðar.
Um sambúð7
1En svo að ég minnist á það, sem þér hafið ritað um, þá er það gott fyrir mann að snerta ekki konu. 2En vegna saurlifnaðarins hafi hver og einn sína eiginkonu og hver og ein hafi sinn eiginmann. 3Maðurinn gæti skyldu sinnar gagnvart konunni og sömuleiðis konan gagnvart manninum. 4Ekki hefur konan vald yfir eigin líkama, heldur maðurinn. Sömuleiðis hefur og maðurinn ekki heldur vald yfir eigin líkama, heldur konan. 5Haldið yður eigi hvort frá öðru, nema þá eftir samkomulagi um stundarsakir, til þess að þér getið haft næði til bænahalds, og takið svo saman aftur, til þess að Satan freisti yðar ekki vegna ístöðuleysis yðar.6Þetta segi ég í tilhliðrunarskyni, ekki sem skipun. 7En þess óska ég, að allir menn væru eins og ég er sjálfur, en hver hefur sína náðargjöf frá Guði, einn þessa og annar hina.
8Hinum ókvæntu og ekkjunum segi ég, að þeim er best að halda áfram að vera ein eins og ég. 9En hafi þau ekki taumhald á sjálfum sér, þá gangi þau í hjónaband, því að betra er að ganga í hjónaband en að brenna af girnd.
10Þeim, sem gengið hafa í hjónaband, býð ég, þó ekki ég, heldur Drottinn, að konan skuli ekki skilja við mann sinn, - 11en hafi hún skilið við hann, þá sé hún áfram ógift eða sættist við manninn -, og að maðurinn skuli ekki heldur skilja við konuna.
12En við hina segi ég, ekki Drottinn: Ef bróðir nokkur á vantrúaða konu og hún lætur sér það vel líka að búa saman við hann, þá skilji hann ekki við hana. 13Og kona, sem á vantrúaðan mann og hann lætur sér vel líka að búa saman við hana, skilji ekki við manninn. 14Því að vantrúaði maðurinn er helgaður í konunni og vantrúaða konan er helguð í bróðurnum. Annars væru börn yðar óhrein, en nú eru þau heilög. 15En ef hinn vantrúaði vill skilja, þá fái hann skilnað. Hvorki bróðir né systir eru þrælbundin í slíkum efnum. Guð hefur kallað yður að lifa í friði. 16Því að hvað veist þú, kona, hvort þú munir geta frelsað manninn þinn? Eða hvað veist þú, maður, hvort þú munir geta frelsað konuna þína?
Verði keyptir17Þó skal hver og einn vera í þeirri stöðu, sem Drottinn hefur úthlutað honum, eins og hann var, þegar Guð kallaði hann. Þannig skipa ég fyrir í öllum söfnuðunum. 18Sá sem var umskorinn, þegar hann var kallaður, breyti því ekki. Sá sem var óumskorinn, láti ekki umskera sig. 19Umskurnin er ekkert og yfirhúðin ekkert, heldur það að halda boðorð Guðs. 20Hver og einn sé kyrr í þeirri stöðu, sem hann var kallaður í. 21Varst þú þræll, er þú varst kallaður? Set það ekki fyrir þig, en gjör þér gott úr því, en ef þú getur orðið frjáls, þá kjós það heldur. 22Því að sá þræll, sem kallaður er í Drottni, er frelsingi Drottins. Á sama hátt er sá, sem kallaður er sem frjáls, þræll Krists. 23Þér eruð verði keyptir, verðið ekki þrælar manna. 24Bræður, sérhver verði frammi fyrir Guði kyrr í þeirri stétt, sem hann var kallaður í.
Giftir og ógiftir25Um meyjarnar hef ég enga skipun frá Drottni. En álit mitt læt ég í ljós eins og sá, er hlotið hefur þá náð af Drottni að vera trúr.
26Mín skoðun er, að vegna yfirstandandi neyðar sé það gott fyrir mann að vera þannig. 27Ertu við konu bundinn? Leitast þá ekki við að verða laus. Ertu laus orðinn við konu? Leita þá ekki kvonfangs. 28En þótt þú kvongist, syndgar þú ekki, og ef mærin giftist, syndgar hún ekki. En þrenging munu slíkir hljóta hér á jörð, en ég vildi hlífa yður.
29En það segi ég, bræður, tíminn er orðinn stuttur. Hér eftir skulu jafnvel þeir, sem kvæntir eru, vera eins og þeir væru það ekki, 30þeir sem gráta, eins og þeir grétu ekki, þeir sem fagna, eins og þeir fögnuðu ekki, þeir sem kaupa, eins og þeir héldu ekki því, sem þeir kaupa, 31og þeir sem nota heiminn, eins og þeir færðu sér hann ekki í nyt. Því að heimurinn í núverandi mynd líður undir lok.
32En ég vil, að þér séuð áhyggjulausir. Hinn ókvænti ber fyrir brjósti það, sem Drottins er, hversu hann megi Drottni þóknast. 33En hinn kvænti ber fyrir brjósti það, sem heimsins er, hversu hann megi þóknast konunni, 34og er tvískiptur. Hin ógifta kona og mærin ber fyrir brjósti það, sem Drottins er, til þess að hún megi vera heilög, bæði að líkama og anda. En hin gifta kona ber fyrir brjósti það, sem heimsins er, hversu hún megi þóknast manninum. 35Þetta segi ég sjálfum yður til gagns, ekki til þess að varpa snöru yfir yður, heldur til þess að efla velsæmi og óbifanlega fastheldni við Drottin.
36Ef einhver telur sig ekki geta vansalaust búið með heitmey sinni, enda á manndómsskeiði, þá gjöri hann sem hann vill, ef ekki verður hjá því komist. Hann syndgar ekki. Giftist þau. 37Sá þar á móti, sem er staðfastur í hjarta sínu og óþvingaður, en hefur fullt vald á vilja sínum og hefur afráðið í hjarta sínu að hún verði áfram mey, gjörir vel. 38Þannig gjöra þá báðir vel, sá sem kvænist mey sinni, og hinn, sem kvænist henni ekki, hann gjörir betur.
39Konan er bundin, meðan maður hennar er á lífi. En ef maðurinn deyr, er henni frjálst að giftast hverjum sem hún vill, aðeins að það sé í Drottni. 40Þó er hún sælli, ef hún heldur áfram að vera eins og hún er, það er mín skoðun. En ég þykist og hafa anda Guðs.
Tillit til óstyrkra8
1Þá er að minnast á kjötið, sem fórnað hefur verið skurðgoðum. Vér vitum, að þekking höfum vér allir. Þekkingin blæs menn upp, en kærleikurinn byggir upp. 2Ef einhver þykist hafa öðlast þekkingu á einhverju, þá þekkir hann enn ekki eins og þekkja ber. 3En ef einhver elskar Guð, þá er hann þekktur af honum.4En hvað varðar neyslu kjöts, sem fórnað hefur verið skurðgoðum, þá vitum vér, að skurðgoð er ekkert í heiminum og að enginn er Guð nema einn. 5Því að enda þótt til séu svo nefndir guðir, hvort heldur er á himni eða á jörðu, - enda eru margir guðir og margir herrar -, 6þá höfum vér ekki nema einn Guð, föðurinn, sem allir hlutir eru frá og líf vort stefnir til, og einn Drottin, Jesú Krist, sem allir hlutir eru til orðnir fyrir og vér fyrir hann.
7En ekki hafa allir þessa þekkingu. Af gömlum vana eta nokkrir kjötið allt til þessa sem fórnarkjöt, og þá saurgast samviska þeirra, sem er óstyrk. 8En matur mun ekki gjöra oss þóknanlega Guði. Hvorki missum vér neins, þótt vér etum það ekki, né ávinnum vér neitt, þótt vér etum.
9En gætið þess, að þetta frelsi yðar verði ekki hinum óstyrku að falli. 10Því sjái einhver þig, sem hefur þekkingu á þessu, sitja til borðs í goðahofi, mundi það ekki stæla samvisku þess, sem óstyrkur er, til að neyta fórnarkjöts? 11Hinn óstyrki glatast þá vegna þekkingar þinnar, bróðirinn, sem Kristur dó fyrir. 12Þegar þér þannig syndgið gegn bræðrunum og særið óstyrka samvisku þeirra, þá syndgið þér á móti Kristi. 13Þess vegna mun ég, ef matur verður bróður mínum til falls, um aldur og ævi ekki kjöts neyta, til þess að ég verði bróður mínum ekki til falls.
Allt vegna fagnaðarerindisins9
1Er ég ekki frjáls? Er ég ekki postuli? Hef ég ekki séð Jesú, Drottin vorn? Eruð þér ekki verk mitt, sem ég hef unnið fyrir Drottin? 2Þótt ekki væri ég postuli fyrir aðra, þá er ég það fyrir yður. Þér eruð staðfesting Drottins á postuladómi mínum.3Þetta er vörn mín gagnvart þeim, sem dæma um mig. 4Höfum vér ekki rétt til að eta og drekka? 5Höfum vér ekki rétt til að ferðast um með kristna eiginkonu, alveg eins og hinir postularnir og bræður Drottins og Kefas? 6Eða erum við Barnabas þeir einu, sem eru ekki undanþegnir því að vinna? 7Hver tekst nokkurn tíma herþjónustu á hendur á sjálfs sín mála? Hver plantar víngarð og neytir ekki ávaxtar hans? Hver gætir hjarðar og neytir ekki af mjólk hjarðarinnar? 8Tala ég þetta á mannlegan hátt, eða segir ekki einnig lögmálið það? 9Ritað er í lögmáli Móse: "Þú skalt ekki múlbinda uxann, er hann þreskir." Hvort lætur Guð sér annt um uxana? 10Eða segir hann það ekki að öllu leyti vor vegna? Jú, vor vegna stendur skrifað, að sá sem plægir og sá sem þreskir eigi að gjöra það með von um hlutdeild í uppskerunni. 11Ef vér nú höfum sáð hjá yður því, sem andlegt er, er það þá of mikið að vér uppskerum hjá yður það, sem líkamlegt er? 12Ef aðrir hafa þennan rétt hjá yður, höfum vér hann þá ekki miklu fremur?
En vér höfum ekki hagnýtt oss þennan rétt, heldur sættum oss við allt, til þess að tálma ekki fagnaðarerindinu um Krist. 13Vitið þér ekki, að þeir, sem vinna við helgidóminn, lifa af því, sem kemur úr helgidóminum, og þeir, sem starfa við altarið, taka hlut með altarinu? 14Þannig hefur Drottinn einnig fyrirskipað að þeir, sem prédika fagnaðarerindið, skuli lifa af fagnaðarerindinu.
15En ég hef ekki hagnýtt mér neitt af þessu og ég skrifa þetta ekki heldur til þess, að svo verði við mig gjört. Mér væri betra að deyja, - enginn skal ónýta það, sem ég hrósa mér af. 16Þótt ég sé að boða fagnaðarerindið, þá er það mér ekki neitt hrósunarefni, því að skyldukvöð hvílir á mér. Já, vei mér, ef ég boðaði ekki fagnaðarerindið. 17Því að gjöri ég þetta af frjálsum vilja, þá fæ ég laun, en gjöri ég það tilknúður, þá hefur mér verið trúað fyrir ráðsmennsku. 18Hver eru þá laun mín? Að ég boða fagnaðarerindið án endurgjalds og hagnýti mér ekki það, sem ég á rétt á.
19Þótt ég sé öllum óháður, hef ég gjört sjálfan mig að þræli allra, til þess að ávinna sem flesta. 20Ég hef verið Gyðingunum sem Gyðingur, til þess að ávinna Gyðinga. Þeim, sem eru undir lögmálinu, hef ég verið eins og sá, sem er undir lögmálinu, enda þótt ég sjálfur sé ekki undir lögmálinu, til þess að ávinna þá, sem eru undir lögmálinu. 21Hinum lögmálslausu hef ég verið sem lögmálslaus, þótt ég sé ekki laus við lögmál Guðs, heldur bundinn lögmáli Krists, til þess að ávinna hina lögmálslausu. 22Hinum óstyrku hef ég verið óstyrkur til þess að ávinna hina óstyrku. Ég hef verið öllum allt, til þess að ég geti að minnsta kosti frelsað nokkra. 23Ég gjöri allt vegna fagnaðarerindisins, til þess að ég fái hlutdeild með því.
24Vitið þér ekki, að þeir, sem keppa á íþróttavelli, hlaupa að sönnu allir, en einn fær sigurlaunin? Hlaupið þannig, að þér hljótið þau. 25Sérhver, sem tekur þátt í kappleikjum, neitar sér um allt. Þeir sem keppa gjöra það til þess að hljóta forgengilegan sigursveig, en vér óforgengilegan. 26Þess vegna hleyp ég ekki stefnulaust. Ég berst eins og hnefaleikamaður, sem engin vindhögg slær. 27Ég leik líkama minn hart og gjöri hann að þræli mínum, til þess að ég, sem hef prédikað fyrir öðrum, skuli ekki sjálfur verða gjörður rækur.
Fyrirboði og viðvörun10
1Ég vil ekki, bræður, að yður skuli vera ókunnugt um það, að feður vorir voru allir undir skýinu og fóru allir yfir um hafið. 2Allir voru skírðir til Móse í skýinu og hafinu. 3Allir neyttu hinnar sömu andlegu fæðu 4og drukku allir hinn sama andlega drykk. Þeir drukku af hinum andlega kletti, sem fylgdi þeim. Kletturinn var Kristur. 5En samt hafði Guð enga velþóknun á flestum þeirra og þeir féllu í eyðimörkinni.6Þessir hlutir hafa gjörst sem fyrirboðar fyrir oss, til þess að vér verðum ekki sólgnir í það, sem illt er, eins og þeir urðu sólgnir í það. 7Verðið ekki skurðgoðadýrkendur, eins og nokkrir þeirra. Ritað er: "Lýðurinn settist niður til að eta og drekka, og þeir stóðu upp til að leika." 8Drýgjum ekki heldur hórdóm, eins og nokkrir þeirra drýgðu hórdóm, og tuttugu og þrjár þúsundir féllu á einum degi. 9Freistum ekki heldur Drottins, eins og nokkrir þeirra freistuðu hans, þeir biðu bana af höggormum. 10Möglið ekki heldur eins og nokkrir þeirra mögluðu, þeir fórust fyrir eyðandanum.
11Allt þetta kom yfir þá sem fyrirboði, og það er ritað til viðvörunar oss, sem endir aldanna er kominn yfir. 12Sá, er hyggst standa, gæti því vel að sér, að hann falli ekki. 13Þér hafið ekki reynt nema mannlega freistingu. Guð er trúr og lætur ekki freista yðar um megn fram, heldur mun hann, þegar hann reynir yður, einnig sjá um, að þér fáið staðist.
14Fyrir því, mínir elskuðu, flýið skurðgoðadýrkunina. 15Ég tala til yðar sem skynsamra manna. Dæmið þér um það, sem ég segi. 16Sá bikar blessunarinnar, sem vér blessum, er hann ekki samfélag um blóð Krists? Og brauðið, sem vér brjótum, er það ekki samfélag um líkama Krists? 17Af því að brauðið er eitt, erum vér hinir mörgu einn líkami, því að vér höfum allir hlutdeild í hinu eina brauði.
18Lítið á Ísraelsþjóðina. Eiga þeir, sem fórnirnar eta, ekki hlut í altarinu? 19Hvað segi ég þá? Að kjöt fórnað skurðgoðum sé nokkuð? Eða skurðgoð sé nokkuð? 20Nei, heldur að það sem heiðingjarnir blóta, það blóta þeir illum öndum, en ekki Guði. En ég vil ekki, að þér hafið samfélag við illa anda. 21Ekki getið þér drukkið bikar Drottins og bikar illra anda. Ekki getið þér tekið þátt í borðhaldi Drottins og borðhaldi illra anda. 22Eða eigum vér að reita Drottin til reiði? Munum vér vera máttugri en hann?
Allt Guði til dýrðar23Allt er leyfilegt, en ekki er allt gagnlegt. Allt er leyfilegt, en ekki byggir allt upp. 24Enginn hyggi að eigin hag, heldur hag annarra.
25Allt það, sem selt er á kjöttorginu, getið þér etið án nokkurra eftirgrennslana vegna samviskunnar. 26Því að jörðin er Drottins og allt, sem á henni er.
27Ef einhver hinna vantrúuðu býður yður og ef þér viljið fara, þá etið af öllu því, sem fyrir yður er borið, án eftirgrennslana vegna samviskunnar. 28En ef einhver segir við yður: "Þetta er fórnarkjöt!" þá etið ekki, vegna þess, er gjörði viðvart, og vegna samviskunnar. 29Samviskunnar, segi ég, ekki eigin samvisku, heldur samvisku hins. En hvers vegna skyldi frelsi mitt eiga að dæmast af samvisku annars? 30Ef ég neyti fæðunnar með þakklæti, hvers vegna skyldi ég sæta lasti fyrir það, sem ég þakka fyrir?
31Hvort sem þér því etið eða drekkið eða hvað sem þér gjörið, þá gjörið það allt Guði til dýrðar. 32Verið hvorki Gyðingum né Grikkjum né kirkju Guðs til ásteytingar. 33Ég fyrir mitt leyti reyni í öllu að þóknast öllum og hygg ekki að eigin hag, heldur hag hinna mörgu, til þess að þeir verði hólpnir.
11
1Verið eftirbreytendur mínir eins og ég er eftirbreytandi Krists.
Um ytri hegðun2Ég hrósa yður fyrir það, að þér í öllu minnist mín og haldið fast við kenningarnar, eins og ég flutti yður þær. 3En ég vil, að þér vitið, að Kristur er höfuð sérhvers manns, maðurinn er höfuð konunnar og Guð höfuð Krists. 4Sérhver sá maður, sem biðst fyrir eða flytur spádóma Guðs og hefur á höfðinu, hann óvirðir höfuð sitt. 5En sérhver kona, sem biðst fyrir eða flytur spádóma Guðs berhöfðuð, óvirðir höfuð sitt. Það er hið sama sem hún hefði látið krúnuraka sig. 6Ef konan því vill ekki hylja höfuð sitt, þá láti hún klippa sig. En ef það er óvirðing fyrir konuna að láta klippa eða raka hár sitt, þá hafi hún á höfðinu. 7Karlmaður á ekki að hylja höfuð sitt, því að hann er ímynd og vegsemd Guðs, en konan er vegsemd mannsins. 8Því ekki er maðurinn af konunni kominn, heldur konan af manninum, 9og ekki var heldur maðurinn skapaður vegna konunnar, heldur konan vegna mannsins. 10Þess vegna á konan vegna englanna að bera tákn um yfirráð mannsins á höfði sér. 11Þó er hvorki konan óháð manninum né maðurinn konunni í samfélaginu við Drottin, 12því að eins og konan er komin af manninum, svo er og maðurinn fæddur af konunni, en allt er frá Guði.
13Dæmið sjálfir: Sæmir það konu að biðja til Guðs berhöfðuð? 14Kennir ekki sjálf náttúran yður, að ef karlmaður ber sítt hár, þá er það honum vansæmd, 15en ef kona ber sítt hár, þá er það henni sæmd? Því að síða hárið er gefið henni í höfuðblæju stað. 16En ætli nú einhver sér að gjöra þetta að kappsmáli, þá viti sá, að annað er ekki venja vor eða safnaða Guðs.
Máltíð Drottins17En um leið og ég áminni um þetta, get ég ekki hrósað yður fyrir samkomur yðar, sem eru fremur til ills en góðs. 18Í fyrsta lagi heyri ég, að flokkadráttur eigi sér stað á meðal yðar, er þér komið saman á safnaðarsamkomum, og því trúi ég að nokkru leyti. 19Víst verður að vera flokkaskipting á meðal yðar, til þess að þeir yðar þekkist úr, sem hæfir eru. 20Þegar þér komið saman er það ekki til þess að neyta máltíðar Drottins, 21því að við borðhaldið hrifsar hver sína máltíð, svo einn er hungraður, en annar drekkur sig ölvaðan. 22Hafið þér þá ekki hús til að eta og drekka í? Eða fyrirlítið þér söfnuð Guðs og gjörið þeim kinnroða, sem ekkert eiga? Hvað á ég að segja við yður? Á ég að hæla yður fyrir þetta? Nei, ég hæli yður ekki.
23Því að ég hef meðtekið frá Drottni það, sem ég hef kennt yður: Nóttina, sem Drottinn Jesús var svikinn, tók hann brauð, 24gjörði þakkir, braut það og sagði: "Þetta er minn líkami, sem er fyrir yður. Gjörið þetta í mína minningu." 25Sömuleiðis tók hann og bikarinn eftir kvöldmáltíðina og sagði: "Þessi bikar er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði. Gjörið þetta, svo oft sem þér drekkið, í mína minningu."
26Svo oft sem þér etið þetta brauð og drekkið af bikarnum, boðið þér dauða Drottins, þangað til hann kemur. 27Hver sem etur brauðið eða drekkur bikar Drottins óverðuglega, verður þess vegna sekur við líkama og blóð Drottins. 28Hver maður prófi sjálfan sig og eti síðan af brauðinu og drekki af bikarnum. 29Því að sá sem etur og drekkur án þess að dæma rétt um líkamann, hann etur og drekkur sjálfum sér til dóms. 30Fyrir því eru svo margir sjúkir og krankir á meðal yðar, og allmargir deyja. 31Ef vér dæmdum um sjálfa oss, yrðum vér ekki dæmdir. 32En fyrst Drottinn dæmir oss, þá er hann að aga oss til þess að vér verðum ekki dæmdir sekir ásamt heiminum.
33Fyrir því skuluð þér bíða hver eftir öðrum, bræður mínir, þegar þér komið saman til að matast. 34Ef nokkur er hungraður, þá eti hann heima, til þess að samkomur yðar verði yður ekki til dóms. Annað mun ég segja til um, þegar ég kem.
Gáfur andans12
1En svo ég minnist á gáfur andans, bræður, þá vil ég ekki að þér séuð fáfróðir um þær. 2Þér vitið, að þegar þér voruð heiðingjar, þá létuð þér leiða yður til mállausra skurðgoðanna, rétt eins og verkast vildi. 3Fyrir því læt ég yður vita, að enginn, sem talar af Guðs anda, segir: "Bölvaður sé Jesús!" og enginn getur sagt: "Jesús er Drottinn!" nema af heilögum anda.4Mismunur er á náðargáfum, en andinn er hinn sami, 5og mismunur er á embættum, en Drottinn hinn sami, 6og mismunur er á hæfileikum að framkvæma, en Guð hinn sami, sem öllu kemur til leiðar í öllum. 7Andinn opinberast í sérhverjum til þess, sem gagnlegt er. 8Einum er fyrir andann gefið að mæla af speki, öðrum að mæla af þekkingu í krafti sama anda. 9Hinn sami andi veitir einum trú, öðrum lækningagáfu 10og öðrum kraft til að framkvæma undur. Einn fær spádómsgáfu, annar hæfileika að greina anda, einn að tala tungum og annar að útleggja tungutal. 11En öllu þessu kemur til leiðar eini og sami andinn, og hann útbýtir hverjum einum eftir vild sinni.
Limir á líkama Krists12Því að eins og líkaminn er einn og hefur marga limi, en allir limir líkamans, þótt margir séu, eru einn líkami, þannig er og Kristur. 13Í einum anda vorum vér allir skírðir til að vera einn líkami, hvort sem vér erum Gyðingar eða Grikkir, þrælar eða frjálsir, og allir fengum vér einn anda að drekka.
14Því að líkaminn er ekki einn limur, heldur margir. 15Ef fóturinn segði: "Fyrst ég er ekki hönd, heyri ég ekki líkamanum til," þá er hann ekki fyrir það líkamanum óháður. 16Og ef eyrað segði: "Fyrst ég er ekki auga, heyri ég ekki líkamanum til," þá er það ekki þar fyrir líkamanum óháð. 17Ef allur líkaminn væri auga, hvar væri þá heyrnin? Ef hann væri allur heyrn, hvar væri þá ilmanin? 18En nú hefur Guð sett hvern einstakan lim á líkamann eins og honum þóknaðist. 19Ef allir limirnir væru einn limur, hvar væri þá líkaminn? 20En nú eru limirnir margir, en líkaminn einn.
21Augað getur ekki sagt við höndina: "Ég þarfnast þín ekki!" né heldur höfuðið við fæturna: "Ég þarfnast ykkar ekki!" 22Nei, miklu fremur eru þeir limir á líkamanum nauðsynlegir, sem virðast vera í veikbyggðara lagi. 23Og þeim, sem oss virðast vera í óvirðulegra lagi á líkamanum, þeim veitum vér því meiri sæmd, og þeim, sem vér blygðumst vor fyrir, sýnum vér því meiri blygðunarsemi. 24Þess þarfnast hinir ásjálegu limir vorir ekki. En Guð setti líkamann svo saman, að hann gaf þeim, sem síðri var, því meiri sæmd, 25til þess að ekki yrði ágreiningur í líkamanum, heldur skyldu limirnir bera sameiginlega umhyggju hver fyrir öðrum. 26Og hvort heldur einn limur þjáist, þá þjást allir limirnir með honum, eða einn limur er í hávegum hafður, samgleðjast allir limirnir honum.
27Þér eruð líkami Krists og limir hans hver um sig. 28Guð hefur sett nokkra í kirkjunni, fyrst postula, í öðru lagi spámenn, í þriðja lagi fræðara, sumum hefur hann veitt gáfu að gjöra kraftaverk, lækna, vinna líknarstörf, stjórna og tala tungum. 29Hvort eru allir postular? Hvort eru allir spámenn? Hvort eru allir fræðarar? Hvort eru allir kraftaverkamenn? 30Hvort hafa allir hlotið lækningagáfu? Hvort tala allir tungum? Hvort útlista allir tungutal? 31Nei, sækist heldur eftir náðargáfunum, þeim hinum meiri. Og nú bendi ég yður á enn þá miklu ágætari leið.
Kærleikurinn mestur13
- 1 Þótt ég talaði tungum manna og engla,
- en hefði ekki kærleika,
- væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla.
- 2 Og þótt ég hefði spádómsgáfu
- og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking,
- og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú, að færa mætti fjöll úr stað,
- en hefði ekki kærleika,
- væri ég ekki neitt.
- 3 Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum,
- og þótt ég framseldi líkama minn, til þess að verða brenndur,
- en hefði ekki kærleika,
- væri ég engu bættari.
- 4 Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður.
- Kærleikurinn öfundar ekki.
- Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp.
- 5 Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin,
- hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.
- 6 Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en samgleðst sannleikanum.
- 7 Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.
- 8 Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.
- En spádómsgáfur, þær munu líða undir lok,
- og tungur, þær munu þagna, og þekking, hún mun líða undir lok.
- 9 Því að þekking vor er í molum og spádómur vor er í molum.
- 10 En þegar hið fullkomna kemur, þá líður það undir lok, sem
- er í molum.
- 11 Þegar ég var barn, talaði ég eins og barn,
- hugsaði eins og barn og ályktaði eins og barn.
- En þegar ég var orðinn fulltíða maður, lagði ég niður barnaskapinn.
- 12 Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu,
- en þá munum vér sjá augliti til auglitis.
- Nú er þekking mín í molum,
- en þá mun ég gjörþekkja, eins og ég er sjálfur gjörþekktur orðinn.
- 13 En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt,
- en þeirra er kærleikurinn mestur.
Allt með reglu14
1Keppið eftir kærleikanum. Sækist eftir gáfum andans, en einkum eftir spádómsgáfu. 2Því að sá, sem talar tungum, talar ekki við menn, heldur við Guð. Enginn skilur hann, í anda talar hann leyndardóma. 3En spámaðurinn talar til manna, þeim til uppbyggingar, áminningar og huggunar. 4Sá, sem talar tungum, byggir upp sjálfan sig, en spámaðurinn byggir upp söfnuðinn. 5Ég vildi að þér töluðuð allir tungum, en þó enn meir, að þér hefðuð spádómsgáfu. Það er meira vert en að tala tungum, nema það sé útlagt, til þess að söfnuðurinn hljóti uppbygging.6Hvað mundi ég gagna yður, bræður, ef ég nú kæmi til yðar og talaði tungum, en flytti yður ekki opinberun eða þekkingu eða spádóm eða kenningu? 7Jafnvel hinir dauðu hlutir, sem gefa hljóð frá sér, hvort heldur er pípa eða harpa, - ef þær gefa ekki mismunandi hljóð frá sér, hvernig ætti þá að skiljast það, sem leikið er á pípuna eða hörpuna? 8Gefi lúðurinn óskilmerkilegt hljóð, hver býr sig þá til bardaga? 9Svo er og um yður: Ef þér mælið ekki með tungu yðar fram skilmerkileg orð, hvernig verður það þá skilið, sem talað er? Því að þér talið þá út í bláinn. 10Hversu margar tegundir tungumála, sem kunna að vera til í heiminum, ekkert þeirra er þó málleysa. 11Ef ég nú þekki ekki merkingu málsins, verð ég sem útlendingur fyrir þeim, sem talar, og hann útlendingur fyrir mér. 12Eins er um yður. Fyrst þér sækist eftir gáfum andans, leitist þá við að vera auðugir að þeim, söfnuðinum til uppbyggingar. 13Biðji því sá, er talar tungum, um að geta útlagt. 14Því að ef ég biðst fyrir með tungum, þá biður andi minn, en skilningur minn ber engan ávöxt. 15Hvernig er því þá farið? Ég vil biðja með anda, en ég vil einnig biðja með skilningi. Ég vil lofsyngja með anda, en ég vil einnig lofsyngja með skilningi. 16Því ef þú vegsamar með anda, hvernig á þá sá, er skipar sess hins fáfróða, að segja amen við þakkargjörð þinni, þar sem hann veit ekki, hvað þú ert að segja? 17Að vísu getur þakkargjörð þín verið fögur, en hinn uppbyggist ekki.
18Ég þakka Guði, að ég tala tungum öllum yður fremur, 19en á safnaðarsamkomu vil ég heldur tala fimm orð með skilningi mínum, til þess að ég geti frætt aðra, en tíu þúsund orð með tungum.
20Bræður, verið ekki börn í dómgreind, heldur sem ungbörn í illskunni, en fullorðnir í dómgreind. 21Í lögmálinu er ritað:
- Með annarlegu tungutaki
- og annarlegum vörum
- mun ég tala til lýðs þessa,
- og eigi að heldur munu þeir heyra mig,
segir Drottinn. 22Þannig er þá tungutalið til tákns, ekki þeim sem trúa, heldur hinum vantrúuðu. En spámannlega gáfan er ekki til tákns fyrir hina vantrúuðu, heldur þá sem trúa. 23Ef nú allur söfnuðurinn kæmi saman og allir töluðu tungum, og inn kæmu fáfróðir menn eða vantrúaðir, mundu þeir þá ekki segja: "Þér eruð óðir"? 24En ef allir töluðu af spámannlegri gáfu, og inn kæmi einhver vantrúaður eða fáfróður þá sannfærðist hann og dæmdist af öllum. 25Leyndardómar hjarta hans verða opinberir, og hann fellur fram á ásjónu sína og tilbiður Guð og lýsir því yfir, að Guð er sannarlega hjá yður.
Þegar þér komið saman26Hvernig er það þá, bræður? Þegar þér komið saman, þá hefur hver sitt fram að færa: Sálm, kenningu, opinberun, tungutal, útlistun. Allt skal miða til uppbyggingar. 27Séu einhverjir, sem tala tungum, mega þeir vera tveir eða í mesta lagi þrír, hver á eftir öðrum, og einn útlisti. 28En ef ekki er neinn til að útlista, þá þegi sá á safnaðarsamkomunni, sem talar tungum, en tali við sjálfan sig og við Guð. 29En spámenn tali tveir eða þrír og hinir skulu dæma um. 30Fái einhver annar, sem þar situr, opinberun, þá þagni hinn fyrri. 31Því að þér getið allir, hver á eftir öðrum, talað af spámannlegri andagift, til þess að allir hljóti fræðslu og uppörvun. 32Andar spámanna eru spámönnum undirgefnir, 33því að Guð er ekki Guð truflunarinnar, heldur friðarins.
Eins og í öllum söfnuðum hinna heilögu 34skulu konur þegja á safnaðarsamkomunum, því að ekki er þeim leyft að tala, heldur skulu þær vera undirgefnar, eins og líka lögmálið segir. 35En ef þær vilja fræðast um eitthvað, þá skulu þær spyrja eiginmenn sína heima. Því að það er ósæmilegt fyrir konu að tala á safnaðarsamkomu. 36Eða er Guðs orð frá yður komið? Eða er það komið til yðar einna?
37Ef nokkur þykist spámaður vera eða gæddur gáfum andans, hann skynji, að það, sem ég skrifa yður, er boðorð Drottins. 38Vilji einhver ekki við það kannast, þá verður ekki við hann kannast. 39Þess vegna, bræður mínir, sækist eftir spádómsgáfunni og aftrið því ekki, að talað sé tungum. 40En allt fari sómasamlega fram og með reglu.
Boðað fyrst og fremst15
1Ég minni yður, bræður, á fagnaðarerindi það, sem ég boðaði yður, sem þér og veittuð viðtöku og þér einnig standið stöðugir í. 2Fyrir það verðið þér og hólpnir ef þér haldið fast við orðið, fagnaðarerindið, sem ég boðaði yður, og hafið ekki ófyrirsynju trúna tekið. 3Því það kenndi ég yður fyrst og fremst, sem ég einnig hef meðtekið, að Kristur dó vegna vorra synda samkvæmt ritningunum, 4að hann var grafinn, að hann reis upp á þriðja degi samkvæmt ritningunum 5og að hann birtist Kefasi, síðan þeim tólf. 6Því næst birtist hann meira en fimm hundruð bræðrum í einu, sem flestir eru á lífi allt til þessa, en nokkrir eru sofnaðir. 7Síðan birtist hann Jakobi, því næst postulunum öllum.8En síðast allra birtist hann einnig mér, eins og ótímaburði. 9Því ég er sístur postulanna og er ekki þess verður að kallast postuli, með því að ég ofsótti söfnuð Guðs. 10En af Guðs náð er ég það sem ég er, og náð hans við mig hefur ekki orðið til ónýtis, heldur hef ég erfiðað meira en þeir allir, þó ekki ég, heldur náð Guðs, sem með mér er. 11Hvort sem það því er ég eða þeir, þá prédikum vér þannig, og þannig hafið þér trúna tekið.
Afleiðing upprisu Krists12En ef nú er prédikað, að Kristur sé upprisinn frá dauðum, hvernig geta þá nokkrir yðar sagt, að dauðir rísi ekki upp? 13Ef ekki er til upprisa dauðra, þá er Kristur ekki heldur upprisinn. 14En ef Kristur er ekki upprisinn, þá er ónýt prédikun vor, ónýt líka trú yðar. 15Vér reynumst þá vera ljúgvottar um Guð, þar eð vér höfum vitnað um Guð, að hann hafi uppvakið Krist, sem hann hefur ekki uppvakið, svo framarlega sem dauðir rísa ekki upp. 16Því að ef dauðir rísa ekki upp, er Kristur ekki heldur upprisinn. 17En ef Kristur er ekki upprisinn, er trú yðar fánýt, þér eruð þá enn í syndum yðar, 18og þá eru einnig þeir, sem sofnaðir eru í trú á Krist, glataðir. 19Ef von vor til Krists nær aðeins til þessa lífs, þá erum vér aumkunarverðastir allra manna.
20En nú er Kristur upprisinn frá dauðum sem frumgróði þeirra, sem sofnaðir eru. 21Því að þar eð dauðinn kom fyrir mann, kemur og upprisa dauðra fyrir mann. 22Því að eins og allir deyja fyrir samband sitt við Adam, svo munu allir lífgaðir verða fyrir samfélag sitt við Krist. 23En sérhver í sinni röð: Kristur sem frumgróðinn, því næst, við komu hans, þeir sem honum tilheyra. 24Síðan kemur endirinn, er hann selur ríkið Guði föður í hendur, er hann hefur að engu gjört sérhverja tign, sérhvert veldi og kraft. 25Því að honum ber að ríkja, uns hann leggur alla fjendurna undir fætur hans. 26Dauðinn er síðasti óvinurinn, sem verður að engu gjörður. 27"Allt hefur hann lagt undir fætur honum." Þegar stendur, að allt hafi verið lagt undir hann, er augljóst, að sá er undan skilinn, sem lagði allt undir hann. 28En þegar allt hefur verið lagt undir hann, þá mun og sonurinn sjálfur leggja sig undir þann, er lagði alla hluti undir hann, til þess að Guð sé allt í öllu.
29Til hvers eru menn annars að láta skírast fyrir hina dánu? Ef dauðir menn rísa alls ekki upp, hvers vegna láta menn þá skíra sig fyrir þá?
30Hvers vegna erum vér líka að stofna oss í hættu hverja stund? 31Svo sannarlega, bræður, sem ég get hrósað mér af yður í Kristi Jesú, Drottni vorum: Á degi hverjum vofir dauðinn yfir mér. 32Hafi ég eingöngu að hætti manna barist við villidýr í Efesus, hvaða gagn hefði ég þá af því? Ef dauðir rísa ekki upp,
- etum þá og drekkum,
- því að á morgun deyjum vér!
33Villist ekki. Vondur félagsskapur spillir góðum siðum. 34Vaknið fyrir alvöru og syndgið ekki. Nokkrir hafa enga þekkingu á Guði. Yður til blygðunar segi ég það.
Hvernig rísa dauðir upp?35En nú kynni einhver að segja: "Hvernig rísa dauðir upp? Hvaða líkama hafa þeir, þegar þeir koma?" 36Þú óvitri maður! Það sem þú sáir lifnar ekki aftur nema það deyi. 37Og er þú sáir, þá er það ekki sú jurt, er vex upp síðar, sem þú sáir, heldur bert frækornið, hvort sem það nú heldur er hveitikorn eða annað fræ. 38En Guð gefur því líkama eftir vild sinni og hverri sæðistegund sinn líkama. 39Ekki eru allir líkamir eins, heldur hafa mennirnir einn, kvikféð annan, fuglarnir einn og fiskarnir annan. 40Til eru himneskir líkamir og jarðneskir líkamir. En vegsemd hinna himnesku er eitt og hinna jarðnesku annað. 41Eitt er ljómi sólarinnar og annað ljómi tunglsins og annað ljómi stjarnanna, því að stjarna ber af stjörnu í ljóma.
42Þannig er og um upprisu dauðra. Sáð er forgengilegu, en upp rís óforgengilegt. 43Sáð er í vansæmd, en upp rís í vegsemd. Sáð er í veikleika, en upp rís í styrkleika. 44Sáð er jarðneskum líkama, en upp rís andlegur líkami. Ef jarðneskur líkami er til, þá er og til andlegur líkami. 45Þannig er og ritað: "Hinn fyrsti maður, Adam, varð að lifandi sál," hinn síðari Adam að lífgandi anda. 46En hið andlega kemur ekki fyrst, heldur hið jarðneska, því næst hið andlega. 47Hinn fyrsti maður er frá jörðu, jarðneskur, hinn annar maður er frá himni. 48Eins og hinn jarðneski var, þannig eru og hinir jarðnesku og eins og hinn himneski, þannig eru og hinir himnesku. 49Og eins og vér höfum borið mynd hins jarðneska, munum vér einnig bera mynd hins himneska.
50En það segi ég, bræður, að hold og blóð getur eigi erft Guðs ríki, eigi erfir heldur hið forgengilega óforgengileikann. 51Sjá, ég segi yður leyndardóm: Vér munum ekki allir sofna, en allir munum vér umbreytast 52í einni svipan, á einu augabragði, við hinn síðasta lúður. Því lúðurinn mun gjalla og þá munu hinir dauðu upp rísa óforgengilegir, og vér munum umbreytast. 53Þetta forgengilega á að íklæðast óforgengileikanum og þetta dauðlega að íklæðast ódauðleikanum. 54En þegar hið forgengilega íklæðist óforgengileikanum og hið dauðlega ódauðleikanum, þá mun rætast orð það, sem ritað er:
- Dauðinn er uppsvelgdur í sigur.
- 55 Dauði, hvar er sigur þinn?
- Dauði, hvar er broddur þinn?
56En syndin er broddur dauðans og lögmálið afl syndarinnar. 57Guði séu þakkir, sem gefur oss sigurinn fyrir Drottin vorn Jesú Krist!
58Þess vegna, mínir elskuðu bræður, verið staðfastir, óbifanlegir, síauðugir í verki Drottins. Þér vitið að erfiði yðar er ekki árangurslaust í Drottni.
Samskotin til safnaðarins í Jerúsalem16
1En hvað snertir samskotin til hinna heilögu, þá skuluð einnig þér fara með þau eins og ég hef fyrirskipað söfnuðunum í Galatíu. 2Hvern fyrsta dag vikunnar skal hver yðar leggja í sjóð heima hjá sér það, sem efni leyfa, til þess að ekki verði fyrst farið að efna til samskota, þegar ég kem. 3En þegar ég svo kem, mun ég senda þá, sem þér teljið hæfa, með líknargjöf yðar til Jerúsalem, og skrifa með þeim. 4En ef betra þykir að ég fari líka, þá geta þeir orðið mér samferða.5Ég mun koma til yðar, er ég hef farið um Makedóníu, því að um Makedóníu legg ég leið mína. 6Ég mun ef til vill staldra við hjá yður, eða jafnvel dveljast vetrarlangt, til þess að þér getið búið ferð mína, hvert sem ég þá kann að fara. 7Því að nú vil ég ekki sjá yður rétt í svip. Ég vona sem sé, ef Drottinn lofar, að standa við hjá yður nokkra stund. 8Ég stend við í Efesus allt til hvítasunnu, 9því að mér hafa opnast þar víðar dyr og verkmiklar og andstæðingarnir eru margir.
10Ef Tímóteus kemur, þá sjáið til þess, að hann geti óttalaust hjá yður verið, því að hann starfar að verki Drottins eins og ég. 11Þess vegna lítilsvirði enginn hann, greiðið heldur ferð hans í friði, til þess að hann geti komist til mín. Því að ég vænti hans með bræðrunum.
12En hvað snertir bróður Apollós, þá hef ég mikillega hvatt hann til að verða bræðrunum samferða til yðar. En hann var alls ófáanlegur til að fara nú, en koma mun hann, er hentugleikar hans leyfa.
Fyrirbænir og kveðjur13Vakið, standið stöðugir í trúnni, verið karlmannlegir og styrkir. 14Allt sé hjá yður í kærleika gjört.
15Um eitt bið ég yður, bræður. Þér vitið að Stefanas og heimili hans er frumgróði Akkeu og að þeir hafa helgað sig þjónustu heilagra. 16Sýnið slíkum mönnum undirgefni og hverjum þeim er starfar með og leggur á sig erfiði. 17Ég gleðst yfir návist þeirra Stefanasar, Fortúnatusar og Akkaíkusar, af því að þeir hafa bætt mér upp fjarvist yðar. 18Þeir hafa bæði glatt mig og yður. Hafið mætur á slíkum mönnum.
19Söfnuðirnir í Asíu biðja að heilsa yður. Akvílas og Priska ásamt söfnuðinum í húsi þeirra biðja kærlega að heilsa yður í Drottins nafni. 20Allir bræðurnir biðja að heilsa yður. Heilsið hver öðrum með heilögum kossi.
21Kveðjan er með eigin hendi minni, Páls. 22Ef einhver elskar ekki Drottin, hann sé bölvaður. Marana ta! 23Náðin Drottins Jesú sé með yður. 24Kærleikur minn er með öllum yður í Kristi Jesú.
Netútgáfan og Hið Íslenska Biblíufélag - ágúst 1997